„Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1979/Minning látinna“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip

Lína 13: Lína 13:
hverjum sér góðan of getur.

hverjum sér góðan of getur.

[[Mynd:Screen Shot 2017-07-03 at 09.05.06.png|250px|thumb|Óskar P. Einarsson.]]
'''Óskar P. Einarsson, Stakkholti'''

'''Óskar P. Einarsson, Stakkholti'''

'''F. 11. jan. 1908 - D. 21. maí 1978.'''

Lína 19: Lína 19:
Sennilega minnast flestir Vestmannaeyingar Óskars fyrir störf hans í lögreglunni, þar sem hann gat sér mjög gott orð fyrir lipurð og lagni í störfum. Reyndist honum í því starfi betur að beita lagni en kröftum, þótt ekki væri honum afls vant, því á yngri árum þótti hann lagtækur glímumaður og var alla tíð mikill unnandi íslenskrar glímu. Þá var Óskar vel lesinn, einkum í fornsögunum, sem hann mat mikils.

Eftirlifandi kona hans er Guðný Svava Gísladóttir frá Arnarhóli.

[[Mynd:Screen Shot 2017-07-03 at 09.05.21.png|250px|thumb|Magnús Magnússon]]
'''[[Magnús Magnússon (Vesturhúsum)|Magnús Magnússon]]'''

'''frá Vesturhúsum'''

'''frá Vesturhúsum'''

Lína 29: Lína 29:
Þótt Magnús stundaði lítt sjó á sinni lífsleið, skildi hann mjög vel, að það er á sjósókn og fiskvinnslu sem allt okkar líf byggist á, ekki aðeins hér í Eyjum heldur afkoma allrar þjóðarinnar. Margoft benti hann á, hver nauðsyn það er að hlúa sem best að þessum undirstöðuatvinnuvegi og varaði við því að kippa stoðunum þar undan.

Eftirlifandi kona Magnúsar er [[Kristín Ásmundsdóttir (húsfreyja)|Kristín Margrét Ásmundsdóttir]] frá Seyðisfirði.

[[Mynd:Screen Shot 2017-07-03 at 09.05.38.png|250px|thumb|Kjartan Jónsson]]
'''Kjartan Jónsson'''

'''Kjartan Jónsson'''

'''Faxastíg 8'''

'''Faxastíg 8'''

Lína 36: Lína 36:
Kjartan kom hingað til Eyja 1928 og stundaði sjóinn allmörg ár, m.a. var hann formaður hér nokkrar vertíðir. En fertugur að aldri fór hann í Iðnskólann og lauk þaðan prófi í vélsmíði, hafði þá reyndar starfað nokkur ár í Vélsmiðjunni Magna. Þar varð svo starfsvettvangur hans til æviloka. Alla tíð bar hann hag fyrirtækisins mjög fyrir brjósti auk þess sem hann var þekktur fyrir dugnað og ósérhlífni í starfi. Í útgerðarbæ eins og Vestmannaeyjum er ævinlega brýn þörf fyrir kunnáttumenn í vélsmíði og margt handtakið hafði Kjartan unnið á lífsleiðinni í þágu flotans, áður en yfir lauk. Lengst af var hann heilsugóður og hreystimenni. En 1976 fann hann til þess sjúkdóms, sem honum varð að aldurtila.

Eftirlifandi kona Kjartans er Ragnhildur Jónsdóttir frá Seljavöllum undir Austur-Eyjafjöllum.

[[Mynd:Screen Shot 2017-07-03 at 09.05.58.png|250px|thumb|Helgi Þorsteinsson]]
'''Helgi Þorsteinsson'''

'''Helgi Þorsteinsson'''

'''Heiðarvegi 40'''

'''Heiðarvegi 40'''

Lína 43: Lína 43:
Helgi fékk hvarvetna gott orð, bæði frá félögum sínum og vinnuveitendum. Hann var lipurmenni og góður í umgengni og annálað snyrtimenni í umgengni við vélar. Þá unni hann og mjög þjóðlegum fróðleik og ljóðlist eins og Skagfirðingi sæmir.

Eftirlifandi kona hans er Hulda Guðmundsdóttir frá Hrafnagili.

[[Mynd:Screen Shot 2017-07-03 at 09.06.11.png|250px|thumb|Valdimar Ástgeirsson]]
'''Valdimar Ástgeirsson'''

'''Valdimar Ástgeirsson'''

'''frá Litlabæ'''

'''frá Litlabæ'''

Lína 52: Lína 52:
Vestmannaeyjar voru starfsvettvangur hans, hér fæddist hann, lifði og starfaði og hér vildi hann bera beinin. Þann tima sem hann bjó í Hveragerði man ég vel eftir Valla í Litlabæ, þar sem hann stóð keikur með hönd á enni og horfði í átt til Eyja. Það leyndi sér ekki hvert hugurinn leitaði.

Eftirlifandi kona Valdimars er [[Þórodda Vigdís Loftsdóttir (Bræðraborg)|Þórodda Loftsdóttir]] frá [[Uppsalir|Uppsölum]].

[[Mynd:Screen Shot 2017-07-03 at 09.06.40.png|250px|thumb|Alfreð Þorgrímsson.]]
'''Alfreð Þorgrímsson'''

'''Alfreð Þorgrímsson'''

'''Faxastíg 42'''

'''Faxastíg 42'''

Lína 61: Lína 61:
Alfreð var maður félagslyndur og stéttvís, sem best má á því merkja, að hann sat í stjórn Vélstjórafélags Vestmannaeyja í 30 ár lengst af gjaldkeri félagsins, auk þess sem hann var nokkurs konar óformlegur framkvæmdastjóri félagsins. Það má hiklaust fullyrða, að Vélstjórafélagið eigi honum meira að þakka en nokkrum öðrum, sem þar hefur nálægt komið á ferli þess féiags. Meðal annars starfaði hann ötullega að aukinni menntun vélstjóra hér í Eyjum.

Konu sína Sigríði B Jósafatsdóttur missti Alfreð árið 1977.

[[Mynd:Screen Shot 2017-07-03 at 09.06.59.png|250px|thumb|Ólafur Ólafsson]]
'''Ólafur Ólafsson'''

'''Ólafur Ólafsson'''

'''frá Hvanneyri'''

'''frá Hvanneyri'''

Lína 68: Lína 68:
Ólafur kvæntist árið 1937 Helgu Hansdóttur frá Kjalarnesi og stofnuðu þau heimili hér í Eyjum, fyrst í Ásum við Skólaveg og síðar að Hvanneyri við Vestmannabraut og var Ólafur oft við það hús kenndur. En þekktastur mun hann þó hafa verið sem Óli á Létti, enda var hann skipstjóri á honum, allt frá því hann kom hingað og þar til hann lét af störfum árið 1967. Það var erilsamt starf og vandasamt, sem hann skilaði með prýði.

Þótt Ólafur væri ekki innfæddur Vestmannaeyingur, var hann Vestmannaeyingur í húð og hár, hér átti hann heima og hvergi annars staðar, enda var hann einn hinna fyrstu, sem hingað snéru á ný eftir gos. Hann var maður orðfár en orðheldinn og drengskaparmaður í hvívetna.

[[Mynd:Screen Shot 2017-07-03 at 09.07.15.png|250px|thumb|Sigurður Þórðarson]]
'''Sigurður Þórðarson'''

'''Sigurður Þórðarson'''

'''Boðaslóð 2'''

'''Boðaslóð 2'''

Lína 75: Lína 75:
Sigurður starfaði hjá [[Hraðfrystistöð Vestmannaeyja|Hraðfrystistöð Vestmannaeyja]] nær óslitið frá því hann kom hingað og meðan honum entist aldur og heilsa. Sigurður var maður, sem ekki lét mikið fyrir sér fara, hann sóttist ekki eftir þessa heims gæðum. En þeir sem kynntust honum, vissu hvern mann hann hafði að geyma og þótt hann safnaði ekki auðæfum af þessum heimi, átti hann þann auð, sem hvorki mölur né ryð fá grandað. Hann var barngóður með afbrigðum og hændust börn mjög að honum. Er mér sagt, að öll börn í nágrenninu hafi kallað hann afa.

Starf verkamannsins vill oft gleymast og verða lítils metið en því skulum við ekki gleyma, að það er með samstilltu átaki verkamanna til sjós og lands, sem grundvöllurinn er lagður að efnahagslegri afkomu okkar. Þess vegna minnumst við Sigurðar í dag.

[[Mynd:Screen Shot 2017-07-03 at 09.07.36.png|250px|thumb|Júlíus Jónsson]]
'''Júlíus Jónsson'''

'''Júlíus Jónsson'''

'''frá Stafholti'''

'''frá Stafholti'''

Lína 84: Lína 84:
Mikill samgangur var milli Stafholts og æskuheimilis míns í Þorlaugargerði og var ævinlega gott að koma að Stafholti. Þá er mér einnig minnistæð ferð til útlanda árið 1966, þar sem þau Júlíus og Gíslína voru meðal ferðafélaganna. Þar var ekki að sjá, að þau væru einum fjórum áratugum eldri en flestir hinna í ferðinni, slíkur var krafturinn og fjörið.

Júlíus lést 4. september s.l.

Júlíus lést 4. september s.l.

[[Mynd:Screen Shot 2017-07-03 at 09.07.50.png|250px|thumb|Loftur Guðmundsson]]
'''Loftur Guðmundsson'''

'''Loftur Guðmundsson'''

'''rithöfundur'''

'''rithöfundur'''

Lína 91: Lína 91:
Loftur dvaldi hér í Eyjum um nær tólf ára skeið við kennslustörf og á þeim tíma segir Guðmundur Hagalín, að hann hafi farið að sinna ritstörfum af meiri festu og alvöru en áður. Þá samdi hann á sama tíma ýmis smærri verk og tímabundnari og má þar til nefna skemmtiþátt, sem fluttur var á árshátíð [[Skipstjóra- og stýrimannafélag Verðandi|Verðanda]] 1941 og þótti hreint frábær. Á þessum árum samdi Loftur eitt þekktasta verk sitt, leikritið Brimhljóð, sem sýnt var í Reykjavík 1937 og hlaut mjög góða dóma. En sennilega minnast Vestmannaeyingar Lofts hvað helst fyrir Ijóð sín við lög [[Oddgeir Kristjánsson|Oddgeirs Kristjánssonar]], t.d. Fyrir austan mána, Svo björt og skær, Glóðir og síðast en ekki síst við hið þekkta sjómannalag Sjómannslíf (Ship-ohoy).

Það er vegna þessa, sem við minnumst Lofts Guðmundssonar í dag, sem fallins samherja. Hann var einn þeirra, sem kunni að gera gráan hversdagsleikann ögn skemmtilegri og slíkum mönnum eigum við aldrei nóg af.

[[Mynd:Screen Shot 2017-07-03 at 09.08.03.png|250px|thumb|Steindór G. Geirsson]]
'''Steindór G. Geirsson'''

'''Steindór G. Geirsson'''

'''Faxastíg 4'''

'''Faxastíg 4'''

Lína 99: Lína 99:
Steindór var duglegur piltur, áhugasamur og góður félagi. Sjómennska var honum i blóð borin og hann hafði hug á að fara í siglingar og sjá sig um í heiminum.

Enn hefur íslenska sjómannastéttin orðið að færa fórn, en eftir lifir minningin um góðan dreng.

[[Mynd:Screen Shot 2017-07-03 at 09.08.16.png|250px|thumb|Vignir Sigurðsson]]
'''Vignir Sigurðsson'''

'''Vignir Sigurðsson'''

'''frá [[Hellir|Helli]]'''

'''frá [[Hellir|Helli]]'''

Lína 107: Lína 107:
Vorið 1973 hætti hann sjómennsku og vann um tíma í Hafnarfirði en þegar hann snéri heim með fjölskyldu sinni um haustið hóf hann störf sem vélstjóri í Eyjabergi hjá Sigurði Þórðarsyni, en hjá honum hafði hann starfað nær samfellt í tvo áratugi. Segir það nokku um, hvers konar starfsmaður Vignir var.

Vignir lést af slysförum 5. nóv. s.l. við störf í Eyjabergi. Eftirlifandi kona hans er Sandra K. Ísleifsdóttir frá London hér í Eyjum.

[[Mynd:Screen Shot 2017-07-03 at 09.08.32.png|250px|thumb|Runólfur Runólfsson]]
'''[[Runólfur Runólfsson (Búðarfelli)|Runólfur Runólfsson]] Búðarfelli'''

'''F. 29. maí 1892 - D. 16. jan. 1979.'''

Lína 114: Lína 114:
Runólfur var eftirsóttur starfsmaður enda harðduglegur. Fyrstu árin vann hann hjá [[Gunnar Ólafsson|Gunnari Ólafssyni]] við fiskverkun en seinna víðar við fiskverkun og sömuleiðis byggingarvinnu. Að öllum verkum gekk hann með því hugarfari að vinna vel og samviskusamlega. Síðustu starfsár sín vann hann hjá Hraðfrystistöðinni en hætti þar störfum 1970 enda aldurinn farinn að segja til sín.

Petra, kona hans lést árið 1976 og eftir það bjó Runólfur hjá sonum sínum hér í bæ.

[[Mynd:Screen Shot 2017-07-03 at 09.08.47.png|250px|thumb|Birgir Bernódusson]]
'''Birgir Bernódusson'''

'''Birgir Bernódusson'''

'''frá Borgarhól'''

'''frá Borgarhól'''

Lína 120: Lína 120:
Birgir var fæddur hér í Eyjum sonur hjónanna Aðalbjargar Bergmundsdóttur og Bernódusar Þorkelssonar. Fljótlega stefndi hugur hans á sjóinn og 15 ára gamall fer hann fyrst til sjós og var á togurum lengst af. Hann lauk prófi frá Stýrimannaskólanum í Vestmannaeyjum 1972 og starfaði eftir það sem stýrimaður á bátum héðan. Hann þótti dugmikill og góður sjómaður og eftirsóttur í skiprúm. M.a. var hann í rúm 10 ár á sama skipinu, Andvara Ve. Birgir var hæglátur og góður drengur og lítill hávaðamaður, sem ávann sér traust allra, sem kynntust honum.

Sína síðustu sjóferð fór hann sem stýrimaður á m/b Ver, sem fórst á heimleið úr róðri 1. mars s.l. Birgir var kvæntur Theódóru Þórarinsdóttur og áttu þau eina dóttur.

[[Mynd:Screen Shot 2017-07-03 at 09.09.05.png|250px|thumb|Grétar Skaftason]]
'''Grétar Skaftason'''

'''Grétar Skaftason'''

'''Vestmannabraut 67'''

'''Vestmannabraut 67'''

Lína 129: Lína 129:
Grétar lauk vélstjóraprófi frá Vélskólanum hér í Eyjum og var vélstjóri á mörgum bátum hér. Hann var góður sjómaður, lipur og laginn og góður í umgengni. Grétar kvæntist árið 1966 Guðnýju Sólveigu Elíasdóttur og áttu þau einn son. Þau slitu samvistum fyrir nokkrum árum.

Sína hinstu för í þessu lífi fór Grétar, þegar m/b Ver fórst hinn 1. mars s.l. Þar var góður drengur kvaddur of snemma burt.

[[Mynd:Screen Shot 2017-07-03 at 09.09.16.png|250px|thumb|Reynir Sigurlásson]]
'''Reynir Sigurlásson frá Reynistað'''

'''Reynir Sigurlásson frá Reynistað'''

'''F. 6. jan. 1946 - D. 1. mars 1979.'''

Lína 136: Lína 136:
Starf matsveinsins er oft vanmetið um borð. Það kom oft í hlut Reynis að sjá um matseldina á þeim bátum, sem hann var á og sinnti hann því starfi vel. Ekki taldi hann heldur eftir sér að vinna á dekkinu og var þar góður verkmaður.

Reynir fórst með m/b Ver þann 1. mars s.l. Hann var ókvæntur, en eftirlifandi unnusta hans er Erna Guðjónsdóttir.

[[Mynd:Screen Shot 2017-07-03 at 09.09.40.png|250px|thumb|Eiríkur Gunnarsson]]
'''Eiríkur Gunnarsson'''

'''Eiríkur Gunnarsson'''

'''Aðalstræti 16 Rvík'''

'''Aðalstræti 16 Rvík'''

'''F. 6. júní 1956 - D. 1. mars 1979.'''

Eiríkur var skipverji á m/b Ver, sem fórst á heimleið úr róðri 1. mars s.l. Eiríkur var ekki Vestmannaeyingur, en þann stutta tíma, sem þessi ungi geðugi piltur var búinn að vera hér hafði hann unnið sér traust og vináttu vegna dugnaðar og góðrar framkomu. Minningar-athöfn um hann fór fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík í mars s.l. Sjómannadagsblaðið sendir aðstandendum Eiríks heitins innilegustu hluttekningarkveðjur.

[[Mynd:Screen Shot 2017-07-03 at 09.10.24.png|300px|thumb|Sigvaldi Heiðar Árnason]]
'''Sigvaldi Heiðar Árnason'''

'''Sigvaldi Heiðar Árnason'''

'''F. 4.sept 1934 - D. 10 jan. 1979.'''

'''F. 4.sept 1934 - D. 10 jan. 1979.'''

Lína 148: Lína 148:
Heiðar snéri ekki aftur til Eyja eftir gos, heldur settist að á Akureyri, þar sem hann vann á smurstöð og var vel látinn.

Gamlir skipsfélagar minnast Heiðars í dag sem góðs drengs, er of fljótt var kallaður héðan.

[[Mynd:Screen Shot 2017-07-03 at 09.11.16.png|250px|thumb|Eiríkur Sigurjónsson]]
'''Eiríkur Sigurjónsson'''

'''Eiríkur Sigurjónsson'''

'''frá Sólheimum'''

'''frá Sólheimum'''

Lína 156: Lína 156:
Eiríkur vann mikið fyrir Vestmannaeyinga, þegar þeir voru að flytja heim á ný eftir gos og margar voru þær búslóðirnar, sem hann kom um borð í skip áleiðis til Eyja. Sjálfur átti hann ekki afturkvæmt hingað en stundaði atvinnu sína í Keflavík, þar til kallið kom. Hann lést af slysförum 2. október s.l.

Eftirlifandi kona hans er Sigrún Karlsdóttir frá Húsavík og áttu þau 4 börn.

[[Mynd:Screen Shot 2017-07-03 at 09.11.32.png|250px|thumb|Sveinn Jónsson]]
'''Sveinn Jónsson frá [[Landamót|Landamótum]]'''

'''F. 1. des. 1877 - D. 12 okt. 1978.'''

[[Sveinn Jónsson (Landamótum)|Sveinn]] var fæddur að Eystri Skála undir Eyjafjöllum og voru foreldrar hans þau Kristín Björnsdóttir og Jón Einarsson. Árið 1916 kemur Sveinn hingað til Eyja, kvæntist og stofnaði heimili hér. Lengst af bjuggu þau hjón að Landamótum og var Sveinn ávallt kenndur við þann stað. Sveinn stundaði sjó hér, fyrst hjá öðrum en eignaðist fljótlega hlut í m/b Sæfara og var formaður á honum. Sæfari fórst árið 1914 en mannbjörg varð. Þá keypti Sveinn bátinn Ingólf Arnarson ásamt þeim Bjarna í Hlaðbæ og [[Helgi Jónsson (Steinum)|Helga Jónssyni]] í [[Steinar|Steinum]] og var formaður með hann. Síðan var hann með Sleipni, sem hann einnig átti og var með hann þar til hann lét af sjómennsku og fór í land. í [[Ísfélag Vestmannaeyja|Ísfélagi Vestmannaeyja]] starf-aði hann svo meðan heilsa og kraftar entust. Eins og aðrir Vestmannaeyingar varð Sveinn að hverfa héðan 1973 og kom ekki aftur enda orðinn aldraður. Síðustu æviárin dvöldust þau hjónin á sjúkrahúsi. Kona hans var Kristín Þorleifsdóttir frá Fornu Söndum undir Eyjafjöllum og lést hún skömmu á undan honum eða hinn 10. mars 1978. Þau áttu eina dóttur barna, Ásdísi, sem býr í Reykjavík.

Sveinn náði háum aldri, var á 101. aldursári er hann lést. Hann var einstaklega hress alla sína tíð, dugnaðarforkur til allrar vinnu og var gamansemi hans orðlögð. Hafa margar sögur varðveist af snjöllum og skemmtilegum tilsvörum hans, þótt ekki verði þær raktar hér. Hann lést á sjúkrahúsi í Reykjavík 12. okt. s.l.

[[Mynd:Screen Shot 2017-07-03 at 09.11.47.png|250px|thumb|Hjörtur M. Hjartarson]]
'''Hjörtur M. Hjartarson frá Hellisholti'''

'''F. 7. águsl 1893 - D. 8. okt. 1978.'''

Hann var fæddur að Miðey í Landeyjum og voru foreldrar hans Hjörtur Snjólfsson og Gyðríður Magnúsdóttir. Árið 1916 kemur Hjörtur fyrst hingað til Eyja á vertíð og hér stundaði hann sjó sem aðalstarf fram til 1928 og af og til síðan. Hann byggði húsið Hellisholt á árunum 1927 til 1928 og eftir að hann hætti sjósókn stundaði hann landbúnað í smáum stíl í Hellisholti.

Hjörtur snéri ekki aftur til Eyja eftir eldsumbrotin heldur settist að í Kópavogi og þar lést hann s.l. haust. Eftirlifandi kona hans er Sólveig Hróbjartsdóttir ættuð frá Eyrarbakka. Þau eignuðust 7 börn og eru 6 þeirra á lífi.

[[Mynd:Screen Shot 2017-07-03 at 09.11.59.png|250px|thumb|Jón Nikulásson]]
'''Jón Nikulásson'''

'''Jón Nikulásson'''

'''[[Kirkjubær|Kirkjubæ]]'''

'''[[Kirkjubær|Kirkjubæ]]'''

Lína 175: Lína 175:
Á stríðsárunum sigldi hann sem matsveinn bæði á Fjölni og Helgafellinu. En trúlega minnast flestir Vestmannaeyingar Jóns fyrir starf hans á [[Herjólfur|Herjólfi]]. Hann réðst sem háseti þar strax og skipið kom hingað 1959 og þar var hann um borð, meðan heilsa og kraftar entust. Jón var alla tíð einstaklega greiðvikinn maður og ekki kom það hvað síst í ljós um borð í Herjólfi. Margan pakkann handlék Jón og mörg voru þau aukaspor, sem hann mátti á sig leggja til að koma sendingum til skila bæði fyrir Vestmannaeyinga hér heima og aðra uppi á landi. Engin dæmi veit ég þess, að Jón hafi synjað, hafi hann verið beðinn slíkra erinda.

Jón var einstakur reglumaður á alla hluti og snyrtimennska var honum í blóð borin. Hann fluttist ekki hingað aftur eftir gos en bjó í Reykjavík fram að andláti.

[[Mynd:Screen Shot 2017-07-03 at 09.12.41.png|250px|thumb|Finnbogi Finnbogason]]
'''[[Finnbogi Finnbogason|Finnbogi Finnbogason]] frá [[Vallartún|Vallartúni]]'''

'''F. 11. maí 1891 - D. 3. apríl 1979.'''

Lína 186: Lína 186:
Finnbogi var nýkominn á Elliheimilið hér í Eyjum, þegar gosið hófst 1973, fluttist hann þá til Reykjavíkur og bjó eftir það á Hrafnistu.

Finnbogi var maður fylginn sér og ákveðinn en glettinn og spaugsamur, hjartahlýr og kátur. Hann lést að Hrafnistu 3. apríl s.l.

[[Mynd:Screen Shot 2017-07-03 at 09.12.54.png|250px|thumb|Gunnar Marel Jónsson]]
'''[[Gunnar Marel Jónsson|Gunnar Marel Jónsson]]'''

'''F. 6. jan 1891 - D. 7. maí 1979.'''

'''F. 6. jan 1891 - D. 7. maí 1979.'''

Lína 197: Lína 197:
Þegar Gunnar snéri aftur heim til Eyja eftir gos, bjó hann fyrst í [[Hraunbúðir|Hraunbúðum]] en sl. tvö og hálft ár dvaldi hann á sjúkrahúsinu.

Gunnar Marel var dugnaðarmaður í öllu sem hann tók sér fyrir hendur í lífinu og störf hans hafa reist honum óbrotgjarnan minnisvarða í sögu atvinnulífs þessa byggðarlags.

[[Mynd:Screen Shot 2017-07-03 at 09.13.08.png|250px|thumb|Björn Eiríkur Jónsson]]
'''Björn Eiríkur Jónsson'''

'''Björn Eiríkur Jónsson'''

'''frá Gerði'''

'''frá Gerði'''

Lína 206: Lína 206:
Björn kvæntist árið 1907 Hallberu Illugadóttur frá Hafnarfirði en hún lést 1934. Björn kvæntist aftur 1939 Brynheiði Ketilsdóttur úr Mýrdal og lifir hún mann sinn.

Eftir gos bjuggu þau hjón að Þingeyri við Skólaveg hér í bæ, en Gerðisbærnir eyðilögðust í gosinu svo sem menn muna. Björn lést þann 30. apríl 1979.

[[Mynd:Screen Shot 2017-07-03 at 09.13.26.png|250px|thumb|Jónas Guðmundsson]]
'''Jónas Guðmundsson frá Grundarbrekku'''

'''F. 9. mars 1886 - D. 20. febrúar 1979'''

Jónas var Húnvetningur að ætt, fæddur að Torfustöðum, Svartárdal í Austur-Húnavatnssýslu en ólst upp á Refsstöðum í Fremri Laxárdal. 18 ára að aldri fór hann suður til sjóróðra á vertíðum og réri bæði frá Grindavík og Keflavík. Hingað til Eyja fluttist hann árið 1924 og hóf þá störf í Fiskimjölsverksmiðjunni, sem [[Gísli J. Johnsen|Gísli J. Johnsen]] átti þá og rak. Þar starfaði Jónas fram til ársins 1940. Þá réðst hann til Ársæls Sveinssonar og vann hjá honum allt til ársins 1954, er hann fór að vinna hjá [[Hraðfrystistöð Vestmannaeyja|Hraðfrystistöð Vestmannaeyja]], þar sem hann starfaði fram að árinu 1974. Þá hætti Jónas störfum, enda fyllilega búinn að skila sínu dagsverki, hátt á níræðisaldri. Jónas var kappsfullur og duglegur starfsmaður og hvarvetna fékk hann gott orð fyrir dugnað og árvekni í starfi. Ævinlega var hann léttur í lund og léttur í spori og var ekki að sjá, að öldungur væri á ferð, þegar hann skokkaði niður Skólaveginn, slíkur var ævinlega krafturinn og lífsgleðin sem geislaði frá Jónasi. Jónas kvæntist árið 1930 [[Guðrún Magnúsdóttir (Grundarbrekku)|Guðrúnu Magnúsdóttur]] frá Grundarbrekku. Bjuggu þau hjón á Grundarbrekku mest allt sitt líf og voru ævinlega bæði kennd við þann stað. Þeim varð sex barna auðið og komust fimm þeirra til fullorðinsára. Bóndaeðlið var ríkt í Jónasi og lengi hafði hann búskap í smáum stíl að Grundarbrekku. Þá var hann hagsleiksmaður á marga hluti og gekk raunar að öllum störfum með því hugarfari að vinna vel og af vandvirkni.

Sem fyrr segir, stundaði Jónas sjómennsku á yngri árum, en hér í Eyjum valdi hann sér annan starfsvettvang, þó mjög tengdan sjómennsku, allt sitt líf vann hann við fiskvinnslu og kunni þar vel til verka. Jónas lést hinn 20. febrúar s.l.

[[Mynd:Screen Shot 2017-07-03 at 09.13.46.png|250px|thumb|Einar Sigurfinnsson]]
'''Einar Sigurfinnsson Kirkjuvegi 29'''

'''Einar Sigurfinnsson Kirkjuvegi 29'''

'''F. 14. sept. 1884 - D. 17. maí 1979.'''

Lína 217: Lína 217:
Einar kvæntist fyrri konu sinni Gíslrúnu Sigurbergsdóttur árið 1910 og eignuðust þau tvo syni, Sigurbjörn biskup og Sigurfinn verkstjóra hér í Eyjum. Gíslrún lést árið 1913. Seinni konu sinni Ragnhildi Guðmundsdóttur kvæntist Einar árið 1928 og eignuðust þau einn son, Guðmund, sem lengi bjó hér en er nú garðyrkjubóndi í Hveragerði.

Á yngri árum stundaði Einar sjó á vertíðum, svo sem háttur var á með marga bændur. Fyrst mun hann hafa sótt sjó frá Mýrdal en lengst var hann í Vogum og réri þar margar vertíðir. Þegar hann flutti hingað til Eyja starfaði hann hjá Pósti og síma, kvikur í spori og röskur og ekki lengi að koma hlutunum til skila. Einar var ævinlega í góðu skapi og sjaldan minnist ég hans öðruvísi en með bros á vör. Hér í Eyjum bjó Einar ásamt Ragnhildi konu sinni fram til ársins 1967, er þau fluttust ásamt Guðmundi syni sínum til Hveragerðis. Þótt Einar væri orðinn háaldraður maður féll honum illa iðjuleysi og í Hveragerði starfaði hann hjá Búnaðarbankanum við ýmis störf, er til féllu. Til að mynda var hann ævinlega kominn á fætur fyrir allar aldir og búinn að sópa og þrífa fyrir framan bankann, þegar aðrir mættu til vinnu. Allar hreyfingar voru eins og hjá unglingi og hreint ekki að sjá, að þarna færi maður um nirætt. Og þannig minnast sennilega flestir Vestmannaeyingar hans, sem póstsins góðlátlega með bros í auga og bros á vör.

[[Mynd:Screen Shot 2017-07-03 at 09.14.05.png|250px|thumb|Svavar Antoníusson]]
'''Svavar Antoníusson'''

'''Svavar Antoníusson'''

'''Byggðarholti'''

'''Byggðarholti'''

3.443

breytingar

Leiðsagnarval