„Ritverk Árna Árnasonar/Hjálmar Eiríksson“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 2: Lína 2:
'''''Kynning.'''''

'''''Kynning.'''''

'''Hjálmar Eiríksson''' skrifstofumaður frá [[Vegamót]]um, fæddist 25. janúar 1900 og lést 18. ágúst 1940.

'''Hjálmar Eiríksson''' skrifstofumaður frá [[Vegamót]]um, fæddist 25. janúar 1900 og lést 18. ágúst 1940.

Hann var sonur [[Eiríkur Hjálmarsson |Eiríks]] barnakennara á [[Vegamót]]um, f. 11. ágúst 1856, d. 5. apríl 1931, [[Eiríkur Hjálmarsson |Hjálmarssonar]] bónda í Efri-Rotum undir Eyjafjöllum, f. um 1820, d. 1904, Eiríkssonar, og konu Eiríks kennara, [[Sigurbjörg R. Pétursdóttir (Vegamótum)|Sigurbjargar Rannveigar Pétursdóttur]], f. 25. nóvember 1864, d. 28. október 1946, af Suðurnesjum, Ólafssonar.

Hann var sonur [[Eiríkur Hjálmarsson (Vegamótum) |Eiríks]] barnakennara á [[Vegamót]]um, f. 11. ágúst 1856, d. 5. apríl 1931, [[Eiríkur Hjálmarsson |Hjálmarssonar]] bónda í Efri-Rotum undir Eyjafjöllum, f. um 1820, d. 1904, Eiríkssonar, og konu Eiríks kennara, [[Sigurbjörg R. Pétursdóttir (Vegamótum)|Sigurbjargar Rannveigar Pétursdóttur]], f. 25. nóvember 1864, d. 28. október 1946, af Suðurnesjum, Ólafssonar.

Föðursystkini Hjálmars voru m.a. þessi:

Föðursystkini Hjálmars voru m.a. þessi:

[[Þorgerður Hjálmarsdóttir (Dölum)|Þorgerður í Dölum]], kona [[Jón Gunnsteinsson (Dölum)|Jóns Gunnsteinssonar]].

1. [[Þorgerður Hjálmarsdóttir (Dölum)|Þorgerður í Dölum]], kona [[Jón Gunnsteinsson (Dölum)|Jóns Gunnsteinssonar]].

[[Helgi Hjálmarsson (Hamri)|Helgi Hjálmarsson]], – að [[Hamar|Hamri]] hér.

2. [[Helgi Hjálmarsson (Hamri)|Helgi Hjálmarsson]], – að [[Hamar|Hamri]] hér.

[[Sigurbjörg Hjálmarsdóttir (Oddhól)|Sigurbjörg Hjálmarsdóttir]], kona [[Ólafur Guðmundsson (Oddhól)|Ólafs Guðmundssonar]] í [[Oddhóll|Oddhól]].

3. [[Sigurbjörg Hjálmarsdóttir (Oddhól)|Sigurbjörg Hjálmarsdóttir]], kona [[Ólafur Guðmundsson (Oddhól)|Ólafs Guðmundssonar]] í [[Oddhóll|Oddhól]].

[[Guðrún Hjálmarsdóttir (Akri)|Guðrún Hjálmarsdóttir]] á [[Akur|Akri]], kona [[Guðmundur Þórðarson (Akri)|Guðmundar Þórðarsonar]].

4. [[Guðrún Hjálmarsdóttir (Akri)|Guðrún Hjálmarsdóttir]] á [[Akur|Akri]], kona [[Guðmundur Þórðarson (Akri)|Guðmundar Þórðarsonar]].

5. [[Þórunn Hjálmarsdóttir (Lágafelli)|Þórunn Hjálmarsdóttir]] á [[Lágafell]]i.

Kona Hjálmars var [[Jóna Kristinsdóttir]] ljósmóðir ættuð af Norðurlandi, f. 21. desember 1895, d. 27. október 1975.

Kona Hjálmars var [[Jóna Kristinsdóttir]] ljósmóðir ættuð af Norðurlandi, f. 21. desember 1895, d. 27. október 1975.

Útgáfa síðunnar 1. september 2015 kl. 17:21

Hjálmar Eiríksson.

Kynning.
Hjálmar Eiríksson skrifstofumaður frá Vegamótum, fæddist 25. janúar 1900 og lést 18. ágúst 1940.
Hann var sonur Eiríks barnakennara á Vegamótum, f. 11. ágúst 1856, d. 5. apríl 1931, Hjálmarssonar bónda í Efri-Rotum undir Eyjafjöllum, f. um 1820, d. 1904, Eiríkssonar, og konu Eiríks kennara, Sigurbjargar Rannveigar Pétursdóttur, f. 25. nóvember 1864, d. 28. október 1946, af Suðurnesjum, Ólafssonar.
Föðursystkini Hjálmars voru m.a. þessi:
1. Þorgerður í Dölum, kona Jóns Gunnsteinssonar.
2. Helgi Hjálmarsson, – að Hamri hér.
3. Sigurbjörg Hjálmarsdóttir, kona Ólafs Guðmundssonar í Oddhól.
4. Guðrún Hjálmarsdóttir á Akri, kona Guðmundar Þórðarsonar.
5. Þórunn Hjálmarsdóttir á Lágafelli.

Kona Hjálmars var Jóna Kristinsdóttir ljósmóðir ættuð af Norðurlandi, f. 21. desember 1895, d. 27. október 1975.
Börn Hjálmars og Jónu:
1. Eiríkur skrifstofustjóri, f. 4. júlí 1924, d. 5. september 1971, kvæntur Hlíf Erlendsdóttur frá Keflavík.
2. Sigurbjörg deildarritari, f. 2. apríl 1923, d. 1. maí 2010, gift Viggó Einarssyni flugvirkja.
3. Helga Ágústa aðalgjaldkeri á skrifstofu Ríkisspítalanna, f. 2. júlí 1927, d. 7. júlí 2004, gift Árna Friðjónssyni skrifstofumanni.
4. Anna skrifstofumaður í Hafnarfirði, f. 16. desember 1929, gift Kristleifi Einarssyni eftirlitsmanni hjá Íslenzka Álfélaginu í Straumsvík.
5. Ása gjaldkeri hjá Áfengis- og tóbaksverzlun Ríkisins, f. 4. maí 1931, d. 1. mars 2011, gift Hauki Ingimarssyni bifreiðasmið.
5. Fríða Kristbjörg læknaritari á Landspítalanum, f. 4. febrúar 1935, gift (skildu) Birgi Matthíasi Indriðasyni matsveini í Reykjavík.

Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.

Hjálmar sálugi, í þrem orðum sagt, var hvers manns hugljúfi. Hann var maður í hærra lagi, ljóshærður og bjartur yfirlitum, en beinaber og magur í andliti. Hann hafði ljósblá augu og hreinan svip. Hann var herðabreiður og niðurmjór sem títt er um sterka menn, lipur í öllum hreyfingum og snar og fylginn sér. Hann var söngvinn vel og músíkfróður og spilaði mæta vel á mörg hljóðfæri.
Aðallífsstarf Hjálmars voru skrifstofustörf hjá ýmsum fyrirtækjum, en lengst var hann hjá Hf. Fram.
Hjálmar var ágætur lundaveiðimaður og mjög góður félagi, enda eftirsóttur í úteyjafélög vegna þessara mannkosta. Hann var í Álsey, Suðurey og Bjarnarey, - hvers manns hugljúfi.

Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Hjálmar Eiríksson

Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit

Heimildir

Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.