„Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1984/ Ljóð eftir Lýð Ægisson skipstjóra“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
 
(2 millibreytingar ekki sýndar frá sama notandanum)
Lína 1: Lína 1:
<br>
<br>
::::::<big>Ljóð eftir [[Lýður Ægisson|Lýð Ægisson]] skipstjóra</big>
::::::<big>Ljóð eftir [[Lýður Ægisson|Lýð Ægisson]] skipstjóra</big>


[[Mynd:Screen Shot 2017-08-18 at 08.36.37.png|300px|thumb]]
[[Mynd:Screen Shot 2017-08-18 at 08.36.37.png|300px|thumb]]
Lína 24: Lína 25:


::::::::  19. mars 1983
::::::::  19. mars 1983




Lína 51: Lína 53:
:::::::''  Því ætla ég, ó elsku mamma mín<br>
:::::::''  Því ætla ég, ó elsku mamma mín<br>
:::::::''  í ellinni að fá að gæta þín.
:::::::''  í ellinni að fá að gæta þín.
{{Sjómannadagsblað Vestmannaeyja}}

Núverandi breyting frá og með 3. júní 2019 kl. 13:16


Ljóð eftir Lýð Ægisson skipstjóra


Þeir sem ganga hinn gullna veg
gleði og blessun hljóta.
Ævi hinna er ömurleg
sem öllu bölva og blóta.
Þú ert blautur en býsna klár
berð þig vel í þynnku.
Þolir allvel frost og fár
og fyrirlítur linku.
En Bakkus gamli brýtur allt
og brenglar öllum vonum.
Þeim löngum reynist lánið valt
sem leika sér að honum.
Hafðu frá mér heillaráð -
hættu stút að naga -.
Þá líf þitt verður ljóma skráð
og ljúf þín ævisaga.
19. mars 1983


MINN BESTI VIN
Oft ég leiði hugann heim til þín
og horfi oní æskusporin mín.
Ég minnist þess hve mild þú varst og góð.
Mamma, ég þér helga þetta ljóð.
Margt var erfitt æskuárin mín
ótal margt sem hrelldi litla sál.
Þá man ég alltaf mildu orðin þín
þá miklu ást sem sérhvert slökkti bál.
Fyrstu árin man ég furðu vel,
finn þann yl sem fékk ég þá þér frá.
Ég næturvökur þær ei núna tel
en nýt þess enn hve natin varstu þá.
Ef allir ættu einhvern að sem þig
einhvern sem að stæði slíkan vörð.
Og hefðu öðlast heppni á við mig
þá himnaríki væri hér á Jörð.
Þú átt skilið indælt ævikvöld
þar sem einlæg ást og gleði hafa völd.
Því ætla ég, ó elsku mamma mín
í ellinni að fá að gæta þín.