„Elínborg Gísladóttir (Laufási)“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
(Til betri aðgreiningar annarra með sama nafni.) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 15. maí 2015 kl. 20:56

Elínborg Gísladóttir fæddist 1. nóvember 1883 og lést 5. mars 1974. Hún var dóttir Gísla Engilbertssonar og Ragnhildar Þórarinsdóttur.
Elínborg var gift Þorsteini Jónssyni í Laufási og eignuðust þau þrettán börn. Þau voru Þórhildur f. 1903, látin, Unnur, f. 1904, látin, Gísli, f. 1906, látinn, Ásta, f. 1908, látin, Jón, f. 1910, látinn, Fjóla, f. 1912, Ebba, f. 1916, látin, Anna, f. 1919, Bera, f. 1921, Jón, f. 1923, Dagný, f. 1926, Ebba, f. 1927, látin og Ástþór, f. 1936, sonur Unnar, ólst upp hjá þeim.