„Pallakrær“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
3.615 bætum bætt við ,  3. desember 2005
ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 13: Lína 13:


== Gatið í gólfinu einnig notað sem salerni ==
== Gatið í gólfinu einnig notað sem salerni ==
Vinna aðgerðarmanna
Vinna aðgerðarmanna var erfið við þessar aðstæður og vinnudagurinn oft langur, ekki síst í aflahrotum þegar svefntíminn gat farið niður í þrjá til fjóra tíma á sólarhring og jafnvel minna.  Þegar þeir héldu heim að vinnudegi loknum héldu þeir á fötum með [[sundmagi|sundmaga]] sem konur sáu síðan um að verka. Það eitt að skera sundmagann lengdi tímann sem fór í flatninguna um allt að þriðjungi, ekki síst vegna þess að bitið var fljótt að fara úr hnífunum við að skera sundmagann.
 
Gatið í króargólfinu þjónaði einnig sem salerni fyrir þá sem í krónum unnu og má því nærri geta að ekki hefur það alltaf verið tandurhreinn sjór sem menn jusu upp um gatið til fiskþvottar. Fiskur, sem þveginn var upp úr þessum sjó, var því ekki blæfallegur og kom blakkur upp úr salti. Þess utan voru þrengslin í krónum slík að erfitt var um viðunandi verkun á fiskinum yfirleitt. Þetta olli því að eyjafiskurinn hafði ekki sem best orð á sér og féll stundum í verði. Til að reyna að bæta úr þessu ófremdarástandi í salernisaðstöðu lét bærinn byggja sérstakt náðhús vestan við Pallana, steinsteyptan skúr þar sem voru tveir kamrar og sérstakur eftirlitsmaður sem sá um að tæma þar fötur þegar þurfti. Engu að síður hélst þó áfram sá siður að menn léttu á sér niður up króargatið eða fóru undir pallana til að gera þarfir sínar.
 
==Sjóveitan gjörbreytti öllu ==
En árið 1933 var [[Sjóveita]]n á [[Skans|Skansinum]] tekin í gagnið og gjörbreytti allri fiskverkun.  Allvíður tréstokkur var lagður frá veitunni á Skansinum vestur með Strandvegi og endaði í [[Skildingafjara|Skildingafjöru]]. Um hann var dælt sjó úr sjógeyminum á Skansinum. Lengd þessa stokks var 830 metrar. Í krærnar voru svo lagðar leiðslur frá stokknum á kostnað eigenda krónna. Ástæða þess að leiðslan var gerð úr tré, var tvíþætt. Annars vegar voru trépípur taldar endingarbetri en pípur úr járni, þar sem það var saltur sjór sem um þær rann og hefði án efa verið fljótur að tæra sundur járnið. Hin ástæðan var sú að trépípurnar voru þriðjungi ódýrari.
 
Með tilkomu sjóleiðslunnar var sjálfhætt að ausa upp sjó úr höfninni og gatið í króargólfinu þjónaði nú þeim einum tilgangi að losna við óhreinan sjó og svo auðvitað þegar einhver í krónni þurfti að létta á sér.
 
== Nýjar aðferðir í fiskvinnslu ruddu Pöllunum burt ==
Þegar leið fram á síðustu öld fór pallakrónum að smáfækka. Nýjar fiskverkunaraðferðir komu fram á sjónarsviðið og nýjar og betur skipulagðar byggingar risu á þessu mikla athafnasvæði. Um miðja síðustu öld hurfu svo síðustu pallakrærnar þegar stórhýsi Fiskiðjunnar var reist og í dag sjást engin merki um þær, einu minjarnar eru á gömlum ljósmyndum og málverkum.
 
Í hugum margra eru pallakrærnar sveipaðar eins konar dýrðarljóma fortíðarinnar, aðallega þó þeirra sem aldrei stigu fæti sínum í þær. Þeir sem þar unnu grétu fæstir brotthvarf þeirra enda voru pallakrærnar ekki beinlínis aðlaðandi vinnustaður, með öllum sínum óþrifnaði, þrengslum og þrældómi sem fylgdi þessari fiskverkun. Engu að síður er það hálfgert gat í atvinnusögu byggðarlagsins að eiga engar minjar frá þessum tíma. Fram hafa komið hugmyndir um að endurgera svo sem eina pallakró á svæðinu austur við Skans og gæti orðið góð viðbót á það svæði ef vel tækist til.
 
''(Samantekt: Sigurgeir Jónsson, maí 2005)''
1.401

breyting

Leiðsagnarval