„Saga Vestmannaeyja I./ II. Landnám Vestmannaeyja“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip

(1 millibreyting ekki sýnd frá sama notandanum)
Lína 14: Lína 14:

[[Mynd:Saga Vestm., E, 32a.jpg|600px|ctr]]

[[Mynd:Saga Vestm., E, 32a.jpg|600px|ctr]]

''Uppgraftarsvæðið í Herjólfsdal séð frá austri. (Ljósmynd Sigurgeir Jónasson 11.09.1981).''(Mynd úr endurútgáfu. Sjá fleiri myndir í Myndasyrpu.
''Uppgraftarsvæðið í Herjólfsdal séð frá austri. (Ljósmynd [[Sigurgeir Jónasson]] 11.09.1981).''(Mynd úr endurútgáfu. Sjá fleiri myndir í Myndasyrpu).

Lína 28: Lína 28:
Eigi er hægt að fallast á það, að þarna sé staðurinn, er fyrrum var nefndur Ægisdyr, og sízt, að svo veglegt nafn geti átt við þetta litla sund, er endar við urðarbás. Sundið hér við Kaplagjótu er svo örmjótt, að eigi verður út um það róið með árum á bæði borð. Hér er afar brimasamt og staðurinn með allra sízt hugsanlegu lendingarstöðum í eyjum. Þarna hefir eigi verið hin markverða Leið, eða dyr frá Ægi, hafinu, í land eða á haf út, er eyjamenn áttu sjávarsókn sína og afkomu svo mjög undir. Á Vestmannaeyjum hlaut nafn eins og Ægisdyr að hafa sérstaka, dýpri merkingu og vera tengt við aðalskipaleiðina. Við Kaplagjótu getur með engu móti hafa verið báta - eða róðrarleið út á hafið til fiskjar. Þarna eru sjávarurðir, klettar og sker úti í sjónum, erfitt um lendingu í ládeyðu, sem er þarna mjög sjaldan, heldur að jafnaði sífelld kvika, nema stökustu góðviðrisdaga, og hafrót svo stórfengilegt tíðum, að því er viðbrugðið. Kaplagjóta sjálf endar og við lítinn malarbás við standberg og eigi einu sinni hægt að geyma þar smákænu. Sundið, sem eins og áður er lýst, er örmjótt, getur með engu móti hafa verið breiðara áður, heldur auðsætt, að sjórinn hefir hlotið smám saman að breikka heldur þetta örmjóa sund, sem undizt hefir inn í krappri aðheldu milli berghamarsins annars vegar og hárra kletta á hina hliðina, svo það má vart heita róðrargengt smáferju.

Höfundur þessa rits getur eigi tekið undir það, að hér séu hinar fornu Ægisdyr, og er um þetta sammála [[Sigurður Sigurfinnsson|Sigurði hreppstjóra Sigurfinnssyni]] ¹³). Klettasund þetta, sem líkist gjá, getur á engan hátt hafa dregið að sér þá athygli, að lega Herjólfsdals hafi nokkurn tíma verið miðuð við það, þótt segja megi, að Herjólfsdalur sé inn af strandlengjunni við Torfmýri, milli Dalfjalls og Ofanleitishamars, sem að vísu hefði fremur getað komið til mála að kalla Ægisdyr, ef landtökuskilyrði þarna hefðu verið önnur.

Eftir öllum líkum, sem styðjast við staðháttu á Vestmannaeyjum og vissu næst, virðast Ægisdyr, þetta forna, týnda örnefni hljóta að vera þar, sem er [[Leið|''Leiðin'']], skipaleiðin svo lengi sem vitað er til, inn á höfnina að meðtaldri Víkinni, einkum meðan siglingarleiðin náði skemmra inn. Þarna opnast innsiglingin inn úr [[Flói|Flóanum]] inn að verzlunarstaðnum og naustunum, sem minnsta kosti á síðari öldum hafa verið aðallega milli [[Nausthamar]]s og [[Stokkhella|Stokkhellu]]. Allt, sem kunnugt er um sögu Vestmannaeyja, styður það, að þarna hafi verið aðalsiglingaleiðin, er leitað var lands í Vestmannaeyjum, Heimaeyjar, og frá landi, sbr. t.d. frásögnina í Kristnisögu um lendingu þeirra Hjalta Skeggjasonar og Gissurar hvíta við [[Hörgaeyri]] árið 1000, sem er elzta heimildin, er hermir frá lendingarstað á eyjunum, og eftir lýsingunni verður eigi um það villzt, á hvaða slóðum þetta hefir verið. Þetta gerist, er ekki einu sinni mun liðin heil öld frá landnámi eyjanna. Það virðist sama í þessu tilliti, við hvora eyrina sunnan undir Heimakletti, norður - eða suðureyrina, er átt með nafninu Hörgaeyri. Nafnið Ægisdyr á hvergi betur heima en þar, sem sjóleiðin opnast inn úr Flóanum milli [[Klettsnef]]s og [[Miðhúsaklettar|Miðhúsakletta]], bæði þegar siglt er beint inn að austan eða komið er sunnan með [[Urðir|Urðum]] eða að norðan eða vestan fyrir [[Ystiklettur|Yztaklett]]. Af Heimalandi, vestan frá séð, ber Bjarnarey í opið. Á þessum slóðum hafa að vísu orðið miklar breytingar síðan á landnámstíð, sjór gengið á og land eyðzt, en samt virðist mega ætla, að mjög snemma og þegar á landnámstíð hafi sund, Leiðin, gengið inn frá Víkinni, sbr. og áðurnefnda frásögn um lendinguna við Hörgaeyri, og einnig örnefnið Eiði í Landnámu. Eiðið, sem svo er nefnt enn í dag, er norðan megin við núverandi bátahöfn eyjanna, [[Botninn]], og þannig miklu innar en gamla stórskipalægið vestan við [[Hafnareyri]]. Á þessum slóðum við höfnina, Leiðina eða niður í [[Skipasandur|Skipasandi]], sem svo hefir verið kallað, hefir frá því að fyrstu byggðum var skipað á Vestmannaeyjum verið þungamiðja alls athafnalífs eyjanna, og við þetta hefir verið miðað, og hefir verið til skamms tíma meðal fólks, þegar sagt er „fyrir innan“ eða „fyrir utan“ og skal um þetta hér greint nánara. Herjólfsdal skilur fjallið [[Há]]in frá [[Flatir|Flötunum]] inn af Botninum, eða ef Herjólfsdalur er talinn byrja fyrir innan [[Hásteinn|Hástein]], eru mótin um [[Sandskörð|Sandskörðin Neðri]]. Orðin í Hauksbók „fyrir innan Ægisdyr“ koma mjög vel heim við gildandi málvenju hér, er haldizt hefir mjög lengi, og því líkast, sbr. það, er áður segir, að einhver gagnkunnugur eyjunum hafi þarna um fjallað. Meðan málfar hélzt hér nokkurn veginn í óbreyttum skorðum, um aldamótin síðustu, var alltaf sagt „inn“, „innúr“, „inneftir“, miðað við höfnina, til allra þeirra staða, er liggja vestanvert við hana, svo sem inn á Flatir, inn í [[Hlíðarbrekkur]], inn í [[Hraun]], inn í Dal, inn á Torfmýri. Er alls eigi hér með orðinu „inn“ farið eftir almennri málvenju um leið inn í dal, sbr. þá skoðun, er kemur fram í Árbók Fornleifafél. 1913, sem er alveg röng. Um annað lítið dalverpi suður á Heimaey, [[Lyngfellsdalur|Lyngfellsdal]], hefir hins vegar alltaf verið sagt út í Lyngfellsdal, sama gegnir um [[Hafursdalur|Hafursdal]] sunnan á eyjunum, og kemur það heim við, að ætíð hefir fólk sagt „fyrir utan“, „útúr“, „úteftir“ um leiðina til þeirra staða, er liggja sunnanvert á eyjunum, þegar miðað er frá höfninni eða kaupstaðnum. Þessari málvenju heldur gamalt fólk, uppalið hér í eyjum, enn þann dag í dag. Kvað svo rammt að þessu, að um fé, er gekk á síðastnefndum slóðum á [[Heimaland]]i, sunnan Helgafells, í [[Sæfell|Sæfjalli]], Stórhöfða og [[Litlhöfði|Litlhöfða]], var sagt, að það gengi fyrir utan og kallað utanféð, en um fé, er gekk í Hrauninu, Herjólfsdal og á Flötum, að það gengi fyrir innan og talað um „innanféð“, sem var sama og Dalféð eða Fjöruféð. Sama gegndi um róðra og sagt, að fara „inn fyrir“, þegar róið var norður eða vestur fyrir, og að vera „fyrir innan“ og að koma „að innan“, þegar komið var vestan fyrir, mótsett er komið var sunnan eða austan. Virðist allt bera að sama brunni, að miðað hafi verið „innan“, vestan, Leiðarinnar, og „utan“, sunnan og austan.

Eftir öllum líkum, sem styðjast við staðháttu á Vestmannaeyjum og vissu næst, virðast Ægisdyr, þetta forna, týnda örnefni hljóta að vera þar, sem er [[Leið|''Leiðin'']], skipaleiðin svo lengi sem vitað er til, inn á höfnina að meðtaldri Víkinni, einkum meðan siglingarleiðin náði skemmra inn. Þarna opnast innsiglingin inn úr [[Flóinn|Flóanum]] inn að verzlunarstaðnum og naustunum, sem minnsta kosti á síðari öldum hafa verið aðallega milli [[Nausthamar]]s og [[Stokkhella|Stokkhellu]]. Allt, sem kunnugt er um sögu Vestmannaeyja, styður það, að þarna hafi verið aðalsiglingaleiðin, er leitað var lands í Vestmannaeyjum, Heimaeyjar, og frá landi, sbr. t.d. frásögnina í Kristnisögu um lendingu þeirra Hjalta Skeggjasonar og Gissurar hvíta við [[Hörgaeyri]] árið 1000, sem er elzta heimildin, er hermir frá lendingarstað á eyjunum, og eftir lýsingunni verður eigi um það villzt, á hvaða slóðum þetta hefir verið. Þetta gerist, er ekki einu sinni mun liðin heil öld frá landnámi eyjanna. Það virðist sama í þessu tilliti, við hvora eyrina sunnan undir Heimakletti, norður - eða suðureyrina, er átt með nafninu Hörgaeyri. Nafnið Ægisdyr á hvergi betur heima en þar, sem sjóleiðin opnast inn úr Flóanum milli [[Klettsnef]]s og [[Miðhúsaklettar|Miðhúsakletta]], bæði þegar siglt er beint inn að austan eða komið er sunnan með [[Urðir|Urðum]] eða að norðan eða vestan fyrir [[Ystiklettur|Yztaklett]]. Af [[Heimaland]]i, vestan frá séð, ber [[Bjarnarey]] í opið. Á þessum slóðum hafa að vísu orðið miklar breytingar síðan á landnámstíð, sjór gengið á og land eyðzt, en samt virðist mega ætla, að mjög snemma og þegar á landnámstíð hafi sund, Leiðin, gengið inn frá Víkinni, sbr. og áðurnefnda frásögn um lendinguna við Hörgaeyri, og einnig örnefnið [[Eiði]] í Landnámu. Eiðið, sem svo er nefnt enn í dag, er norðan megin við núverandi bátahöfn eyjanna, [[Botninn]], og þannig miklu innar en gamla stórskipalægið vestan við [[Hafnareyri]]. Á þessum slóðum við höfnina, [[Leið]]ina eða niður í [[Skipasandur|Skipasandi]], sem svo hefir verið kallað, hefir frá því að fyrstu byggðum var skipað á Vestmannaeyjum verið þungamiðja alls athafnalífs eyjanna, og við þetta hefir verið miðað, og hefir verið til skamms tíma meðal fólks, þegar sagt er „fyrir innan“ eða „fyrir utan“ og skal um þetta hér greint nánara. Herjólfsdal skilur fjallið [[Há]]in frá [[Flatir|Flötunum]] inn af Botninum, eða ef Herjólfsdalur er talinn byrja fyrir innan [[Hásteinn|Hástein]], eru mótin um [[Sandskörð|Sandskörðin Neðri]]. Orðin í Hauksbók „fyrir innan Ægisdyr“ koma mjög vel heim við gildandi málvenju hér, er haldizt hefir mjög lengi, og því líkast, sbr. það, er áður segir, að einhver gagnkunnugur eyjunum hafi þarna um fjallað. Meðan málfar hélzt hér nokkurn veginn í óbreyttum skorðum, um aldamótin síðustu, var alltaf sagt „inn“, „innúr“, „inneftir“, miðað við höfnina, til allra þeirra staða, er liggja vestanvert við hana, svo sem inn á Flatir, inn í [[Hlíðarbrekkur]], inn í [[Hraun]], inn í Dal, inn á [[Torfmýri]]. Er alls eigi hér með orðinu „inn“ farið eftir almennri málvenju um leið inn í dal, sbr. þá skoðun, er kemur fram í Árbók Fornleifafél. 1913, sem er alveg röng. Um annað lítið dalverpi suður á Heimaey, [[Lyngfellsdalur|Lyngfellsdal]], hefir hins vegar alltaf verið sagt út í Lyngfellsdal, sama gegnir um [[Hafursdalur|Hafursdal]] sunnan á eyjunum, og kemur það heim við, að ætíð hefir fólk sagt „fyrir utan“, „útúr“, „úteftir“ um leiðina til þeirra staða, er liggja sunnanvert á eyjunum, þegar miðað er frá höfninni eða kaupstaðnum. Þessari málvenju heldur gamalt fólk, uppalið hér í eyjum, enn þann dag í dag. Kvað svo rammt að þessu, að um fé, er gekk á síðastnefndum slóðum á [[Heimaland]]i, sunnan Helgafells, í [[Sæfell|Sæfjalli]], Stórhöfða og [[Litlhöfði|Litlhöfða]], var sagt, að það gengi fyrir utan og kallað utanféð, en um fé, er gekk í Hrauninu, Herjólfsdal og á Flötum, að það gengi fyrir innan og talað um „innanféð“, sem var sama og Dalféð eða Fjöruféð. Sama gegndi um róðra og sagt, að fara „inn fyrir“, þegar róið var norður eða vestur fyrir, og að vera „fyrir innan“ og að koma „að innan“, þegar komið var vestan fyrir, mótsett er komið var sunnan eða austan. Virðist allt bera að sama brunni, að miðað hafi verið „innan“, vestan, Leiðarinnar, og „utan“, sunnan og austan.

Skulu nú athuguð orðin í Hauksbók „þar sem nú er hraun brunnið“, sem alltorvelt virðist að átta sig á, og hefir orðið til þess, að því hefir jafnvel verið haldið fram af mörgum, að eldgos kunni að hafa átt sér stað eftir landnámstíð úr Helgafelli, og að þá hafi myndazt hraunið mikla vestan til á eyjunum og Herjólfur mátt flýja Dalinn vegna hraunflóðs. Samt er eigi kunnugt um, að jarðfræðingar hafi rannsakað staðinn og látið þetta álit uppi. Þorvaldur Thoroddsen, er víkur hér að í Lýsingu Íslands, mun í umsögn sinni hafa farið eftir áðurgreindri frásögn í Landnámu og sóknarlýsingu [[Séra Brynjólfur Jónsson|séra Brynjólfs Jónssonar]], án þess að hafa rannsakað staðinn. Þorvaldur Thoroddsen segir í Lýsingu Íslands: „Helgafell hefir líklega gosið snemma á landnámstíð, og mun þess síðar getið“. Í Lýsingu Íslands II segir svo: „Á Vestmannaeyjum er lítið eldfjall, sem heitir Helgafell, það er reglulega löguð strýta, 720 fet á hæð með hraunum allt í kring, efsta gígskálin er úr gjalli og hraunmolum og halli hennar 25—30°. Gígskálin kvað vera 200 álnir að þvermáli og rönd hennar hæst að suðaustan, en lægst að norðvestan; gjallkeilan hefir myndazt síðast, við seinasta gosið, þegar nýja hraunið var runnið; í hraununum eru margir hellrar. ''Það má vel vera, að þar hafi brunnið snemma á landnámstíð, því í einu handriti af Landnámu segir svo: „Herjólfur Bárðarson byggði fyrst Vestmannaeyjar og bjó í Herjólfsdal fyrir innan Ægisdyr, þar sem nú er hraun brunnið“'' ¹⁴).

Við athugun á umhverfi Helgafells og Hrauninu virðist það næsta ólíklegt, að Helgafell hafi gosið á landnámstíð, og að hraunið vestan á Heimaey hafi þá myndazt. Flestir, er um mál þetta hafa fjallað og athugað staðina, hafa verið þeirrar skoðunar, að hraunið muni hafa runnið eða orðið til löngu fyrir landnámstíð, sjá t.d. umsögn Brynjólfs Jónssonar frá Minna-Núpi, Páls Sigurðssonar í Árkvörn ¹⁵). Skal þetta hér athugað nánar.

Lína 36: Lína 36:
Landáma (Hauksbók) segir, að Ormur auðgi, sonur Herjólfs í Herjólfsdal, hafi búið á Ormsstöðum við ''Hamar niðri'', þar sem er blásið allt. Bæjarnafnið Ormsstaðir þekkist nú eigi hér. Lýsingin á staðnum, þar sem bærinn á að hafa staðið, er allglögg, svo að milli aðeins tveggja eða þriggja staða virðist geta verið að velja. Sem sé undir [[Há]]nni, Lághánni, að austan og undir [[Neðri-Kleifar|Neðri Kleifum]] og við [[Nausthamar]]. Þessi síðastnefndi staður er þó ólíklegastur ¹⁶). Skulu nú þessir staðir athugaðir nánar. Mjög virðist það ósennilegt, að bærinn hafi verið byggður undir [[Kleifar|Kleifum]]. Virðist og sem þarna hafi um 1300, er frásögnin er færð í letur, naumast hafa getað verið neitt land eftir, heldur sjór, sbr. og um Eiðið, er og getur í Landnámu. Bezt kemur lýsing Ormsstaða við, að þeir hafi staðið undir [[Há|Lág-Hánni]], sem er múli, er gengur austur úr [[Háhá]]nni. Þarna undir hamrinum eða múlanum hefir verið mjög fagurt bæjarstæði, beint upp af höfninni og víðlendar valllendisgrundir fram að sjónum. Örnefnið [[Náttmálaskarð]] milli Háar og [[Klif|Klifs]], sem hefði getað verið eyktarmark frá bæ austan undir Hánni, sem og raunar víðar, styður og þetta. Gömul munnmæli tengja og fyrrnefndan stað við Ormsstaði. Undir Hánni hefir hvað eftir annað fundizt undan uppblásnum börðum í öskuhaugum ýmsir fornir smámunir úr eiri og járni, kvarnarsteinar, hlóðarsteinar, vaðsteinar o.fl. og sést móta fyrir hleðslum og auðsætt, að þarna hefir verið fornt býli. Svæðið þarna umhverfis hefir verið eitt hið mesta uppblástrarsvæði eyjanna, og orðið örfoka oftar en einu sinni af allháu jarðlagi, sums staðar um 3 álna, eins og rofbakkar sýndu. Nú er land þetta allt komið undir nýrækt og vegsummerki lítt sjáanleg. Um 1300 hlýtur land þarna að hafa verið uppblásið. Lýsingin í Landnámu af staðnum, þar sem Ormsstaðir voru, kemur einkar vel heim um þenna stað. Hér er auðsætt, að miklar breytingar hafa orðið. Jafnvel hvergi annars staðar á Vestmannaeyjum getur maður hugsað sér, að tún hafi tekið af og bær eyðilagzt vegna sandfoks.

Talað er um skemmdir miklar hér á fyrri tímum á fiskigörðum vegna sandfoks. Um miðja 18. öld leitaði stjórnin tillagna sandgræðslustjóra Dana í þessum málum, og voru þá sendir sáðhafrar til eyja, sbr. rentuk.br. 1745 og 1746. Að litlu liði virðist þetta samt hafa orðið.

Í ársriti hins ísl. Náttúrugripasafns 1907—08 er skýrsla um beinafund í Vestmannaeyjum: „Bein fundin í Vestmannaeyjum 1907, í börðum, sem eru blásin upp í Rofunum undir Hánni upp af Hafnarbotninum, c. 10 m. yfir sjávarmáli, en 1—1,5 m. undir yfirborði jarðar. Hefir blásið ofan af grjótbing miklum (gömlum bæjarrústum ?), er garðahleðsla (túngarðar ?) liggja út frá í 3 áttir. Bærinn, ef bær hefir verið, hefir staðið á allháum hól, þar sem örfoka er, er þunnt, dökkrautt leirlag, og í því hafa fundizt smámunir úr látúni og eir. Einnig sökkubrot, brot af hnífsblöðum, kvarnarsteinar o.fl. Beinin öll nema fiskabein hafa skoðað og ákveðið dýrafræðingarnir H. Vinje og K. Hörring í Kaupmannahöfn. Bein þessi eru úr: svíni, nautgrip, sauðkind og geit, hesti, hundi, ketti og landsel; ennfremur úr æðarfugli, fýl, súlu, langvíu, stuttnefju?, lunda, álku (klumbu), geirfugli, eitt lítið vængbein, og svartbak. Loks eru nokkur bein úr fiskum, flest úr þorski.“ Þótt skýrsla þessi að vísu sanni eigi neitt um Ormsstaði, styður hún þó að vísu það, sem áður er tekið fram um þessi efni, og þótti því rétt að taka hana með. ¹⁷) Almennt er talið, að rústirnar undir Hánni séu leifar af fornu bæjarstæði ¹⁸)

Í ársriti hins ísl. Náttúrugripasafns 1907—08 er skýrsla um beinafund í Vestmannaeyjum: „Bein fundin í Vestmannaeyjum 1907, í börðum, sem eru blásin upp í Rofunum undir Hánni upp af Hafnarbotninum, c. 10 m. yfir sjávarmáli, en 1—1,5 m. undir yfirborði jarðar. Hefir blásið ofan af grjótbing miklum (gömlum bæjarrústum?), er garðahleðsla (túngarðar?) liggja út frá í 3 áttir. Bærinn, ef bær hefir verið, hefir staðið á allháum hól, þar sem örfoka er, er þunnt, dökkrautt leirlag, og í því hafa fundizt smámunir úr látúni og eir. Einnig sökkubrot, brot af hnífsblöðum, kvarnarsteinar o.fl. Beinin öll nema fiskabein hafa skoðað og ákveðið dýrafræðingarnir H. Vinje og K. Hörring í Kaupmannahöfn. Bein þessi eru úr: svíni, nautgrip, sauðkind og geit, hesti, hundi, ketti og landsel; ennfremur úr æðarfugli, fýl, súlu, langvíu, stuttnefju?, lunda, álku (klumbu), geirfugli, eitt lítið vængbein, og svartbak. Loks eru nokkur bein úr fiskum, flest úr þorski.“ Þótt skýrsla þessi að vísu sanni eigi neitt um Ormsstaði, styður hún þó að vísu það, sem áður er tekið fram um þessi efni, og þótti því rétt að taka hana með.¹⁷) Almennt er talið, að rústirnar undir Hánni séu leifar af fornu bæjarstæði¹⁸)

Þótt frásögnin í Hauksbók sé sennilegri, sbr. það, er að framan er lýst, verður samt eigi skorið úr því með fullri vissu, hvað réttast er í þessu efni, eða hvor þeirra Orms eða Herjólfs er fyrsti landnámsmaðurinn, eða Herjólfsdalur hefir heitið fyrsti landnámsbærinn eða Ormsstaðir. Sé fylgt Hauksbókarhandritinu, er Ormsstaðanafnið tengt við Orm Herjólfsson Bárðarsonar, en samkv. Sturlubók við Orm Bárðarson. Um þessa nafna og frændur virðist töluvert málum blandað. Viðurnefnin hinn „ánauðgi“ og „auðgi“, þó vel geti verið rétt, virðast og benda til hins framansagða.

Um Orm Herjólfsson segir, að hann einn hafi átt allar Vestmannaeyjar, og hefir hann þá erft þær eða mikinn hluta þeirra eftir Herjólf föður sinn, er mun hafa fengið eyjarnar að kaupi frá eigendum eða umráðamönnum, höfðingjum á landi, því ólíklegt er mjög, að eyjarnar jafngagnsamar og þær hafa ætíð verið hafi eigi verið snemma helgaðar undir landnám. Á dögum Orms Herjólfssonar hefir byggð tekizt að eflast hér, og hefir Ormur haft leigur af jörðum og lendum og umráð yfir útgerðinni. Viðurnefni Orms Herjólfssonar „hinn auðgi“ getur því fyllilega hafa verið réttnefni. Einkennileg eru munnmælin um Herjólf í Dalnum, um að hann hafi selt eyjabúum vatn og m.a. auðgazt af því. Má úr sögnunum og lesa það, að hann hafi setið mjög yfir hlut manna þar. Munnmælin láta [[Vilborgarstaðir|Vilborgarstaði]] byggjast eftir eyðingu Herjólfsdals, og draga nafn af [[Vilborg herjólfsdóttir|Vilborgu]], er verið hafi dóttir Herjólfs í Herjólfsdal, og segir sagan, að hún hafi ein komizt undan, er skriðan hljóp á bæ Herjólfs. Telur þjóðsagan, að Herjólfur hafi að maklegleikum orðið fyrir vendi refsinornanna, fyrir að selja vatnið og nota sér þannig neyð annarra ¹⁹). Við Vilborgu er kennd [[Vilpa]], vatnsbólið fræga á Vilborgarstöðum. Lítur út sem Vilborg hafi fylgt dæmi föður síns að sjá vel fyrir vatnsþurftum við bæ sinn. Vilborg er talin heygð í Vilborgarstaðatúni, heitir þar [[Borguleiði]]. Á Vilborgarstöðum var elzti þingstaður eyjanna, sem vitað er um. Í Biskupasögum segir, að Vilborgarstaðir séu kenndir við
Um Orm Herjólfsson segir, að hann einn hafi átt allar Vestmannaeyjar, og hefir hann þá erft þær eða mikinn hluta þeirra eftir Herjólf föður sinn, er mun hafa fengið eyjarnar að kaupi frá eigendum eða umráðamönnum, höfðingjum á landi, því ólíklegt er mjög, að eyjarnar jafngagnsamar og þær hafa ætíð verið hafi eigi verið snemma helgaðar undir landnám. Á dögum Orms Herjólfssonar hefir byggð tekizt að eflast hér, og hefir Ormur haft leigur af jörðum og lendum og umráð yfir útgerðinni. Viðurnefni Orms Herjólfssonar „hinn auðgi“ getur því fyllilega hafa verið réttnefni. Einkennileg eru munnmælin um Herjólf í Dalnum, um að hann hafi selt eyjabúum vatn og m.a. auðgazt af því. Má úr sögnunum og lesa það, að hann hafi setið mjög yfir hlut manna þar. Munnmælin láta [[Vilborgarstaðir|Vilborgarstaði]] byggjast eftir eyðingu Herjólfsdals, og draga nafn af [[Vilborg Herjólfsdóttir|Vilborgu]], er verið hafi dóttir Herjólfs í Herjólfsdal, og segir sagan, að hún hafi ein komizt undan, er skriðan hljóp á bæ Herjólfs. Telur þjóðsagan, að Herjólfur hafi að maklegleikum orðið fyrir vendi refsinornanna, fyrir að selja vatnið og nota sér þannig neyð annarra¹⁹). Við Vilborgu er kennd [[Vilpa]], vatnsbólið fræga á Vilborgarstöðum. Lítur út sem Vilborg hafi fylgt dæmi föður síns að sjá vel fyrir vatnsþurftum við bæ sinn. Vilborg er talin heygð í Vilborgarstaðatúni, heitir þar [[Borguleiði]]. Á Vilborgarstöðum var elzti þingstaður eyjanna, sem vitað er um. Í Biskupasögum segir, að Vilborgarstaðir séu kenndir við
Vilborgu móður Þórðar Kuggs, er var uppi á öndverðri 13. öld ²⁰) Meiri líkur eru samt fyrir því, að nafn þetta sem samheiti fyrir Vilborgarstaðajarðir sé mikið eldra.

Vilborgu móður Þórðar Kuggs, er var uppi á öndverðri 13. öld²⁰) Meiri líkur eru samt fyrir því, að nafn þetta sem samheiti fyrir Vilborgarstaðajarðir sé mikið eldra.

Bæði handritin af Landnámu nefna Halldóru Ormsdóttur, er átti Eilífur Valla-Brandsson. Halldóra er talin í öðru handritinu (Sturlubók) dóttir Orms Bárðarsonar, en í Hauksbók dóttir Orms Herjólfssonar og þá sonardóttir landnámsmannsins. Hvort réttara er skal athugað hér. Frásögnin í Hauksbók sýnist áreiðanlegri hvað tímatalið snertir, svo er hún og um hérgreind atriði fyllri og nefnir hún móður Halldóru Þorgerði Oddsdóttur. Móðir Eilífs var Þuríður dótturdóttir Flosa Þorbjarnarsonar landnámsmanns á Rangárvöllum. Bróðir Eilífs Valla-Brandssonar var Flosi faðir Kolbeins föður Guðrúnar Kolbeinsdóttur, er átti Sæmundur hinn fróði Sigfússon, d. 1133. Flosi Valla-Brandsson getur verið fæddur á síðustu áratugum 10. aldar, og um svipað leyti Eileifur bróðir hans og kona Eileifs Halldóra Ormsdóttir. Afi hennar Herjólfur Bárðarson, sbr. Hauksbókarhandritið, getur verið fæddur öndverðlega á 10. öld, þannig, að hann hafi verið fulltíða maður í kringum lok landnámsaldar, og byggð hans á Vestmannaeyjum hafizt um það leyti, sem kemur heim við það, er áður greinir, sbr. og Íslendingasögu B.Th.M. En harla er ósennilegt, að fyrsta byggð hér hafi hafizt öllu seinna, sem þó virðist fremur hafa hlotið að vera, og að einn lið vanti til landnámsmannsins, ef fylgt er Sturlubók, sem telur Halldóru dóttur Orms Bárðarsonar. Ef þessu væri svo varið, mætti eftir nokkrum líkum telja, að fyrsta byggð eða bólfesta á eyjunum, því að í þessu tilfelli fækkar um einn lið frá landnámsmanninum til Halldóru, hæfist fyrst 30 til 40 árum eftir lok landnámstíðar eða jafnvel síðar, sem virðist ólíklegra, sbr. það, er áður greinir. Fleira kemur til greina, er styrkt gæti áreiðanleik frásagnarinnar í Hauksbók. Svo sem það, að höfundur Hauksbókar, Haukur lögmaður, var sjálfur af ætt Valla-Brands, og hefir honum, er og var gjörfróður um fornar ættir, hlotið að vera vel kunnugt um þessi ættarvensl. Ættfærslu hans á Halldóru Ormsdóttur, að hún hafi verið dóttir Orms Herjólfssonar, mun því mega telja rétta. Halldóra, er líklega hefir verið einbirni, hefir erft allmikinn auð í löndum og lausum aurum eftir föður sinn, svo minnisstætt kann að hafa verið. Um skyldleika Hauks lögmanns við Valla-Brand skal hér greint. Flosi Bjarnason prestur, d. 1235, var faðir Valgerðar ömmu Hauks lögmanns, en faðir Flosa var Bjarni prestur Bjarnason, d. 29. júní 1181, Flosasonar Kolbeinssonar Flosasonar Valla-Brandssonar ²¹).

Eignarumráðin yfir jörðum og lendum hér hafa gengið til niðja landnámsmannsins. Hauksbók segir, að Ormur Herjólfsson hafi einn átt allar eyjarnar. Eigi er getið annarra barna hans en Halldóru, er eignazt hefir eyjarnar eftir föður sinn. Um niðja þeirra Halldóru Ormsdóttur og Eilífs Valla-Brandssonar er ekki kunnugt, né hvort þau hafa búið á landi, sem vel getur hafa verið, eða í eyjum.

Lína 53: Lína 53:
6) Landnáma, Khavn 1900, I. kap. 302, II. 351.

6) Landnáma, Khavn 1900, I. kap. 302, II. 351.

7) Styrmir fróði príor í Viðey, d. 1245. Sjá form. við Landn.b. og Árb. Fornl.fél. 1913.

7) Styrmir fróði príor í Viðey, d. 1245. Sjá form. við Landn.b. og Árb. Fornl.fél. 1913.

8) Sjá P. Sigurðsson: Örnefni og goðorð í Rangárþingi, S.t.s.Ísl. II, bls. 519. Árb. 1907, 1913. Br. Jónsson og S. Sigurfinnsson.

8) Sjá P. Sigurðsson: Örnefni og goðorð í Rangárþingi, S.t.s. Ísl. II, bls. 519. Árb. 1907, 1913. Br. Jónsson og S. Sigurfinnsson.

9) Lítil Tilvísan um Vestmanna-Eya Háttalag og Bygging, 471, Lbs. 123, 4to.

9) Lítil Tilvísan um Vestmanna-Eya Háttalag og Bygging, 471, Lbs. 123, 4to.

10) Árb. Fornl.fél. 1925—26, bls. 18—21.

10) Árb. Fornl.fél. 1925—26, bls. 18—21.

Lína 60: Lína 60:
13) Sbr. Árb. Fornleifafél. 1913, bls. 7.

13) Sbr. Árb. Fornleifafél. 1913, bls. 7.

14) Lýsing Íslands I og II, bls. 119 og 141—42. Sjá Salomonsens Konversations Leksikon 1928, um Vestmannaeyjar.

14) Lýsing Íslands I og II, bls. 119 og 141—42. Sjá Salomonsens Konversations Leksikon 1928, um Vestmannaeyjar.

15) Árb. Fornleifafél. 1907, S.t.s.Ísl. II.

15) Árb. Fornleifafél. 1907, S.t.s. Ísl. II.

16) Sjá Árb. Fornl.fél. 1907 og 1913, S.t.s.Ísl. II, Örnefni og goðorð í Rangárþingi.

16) Sjá Árb. Fornl.fél. 1907 og 1913, S.t.s. Ísl. II, Örnefni og goðorð í Rangárþingi.

17) Beinunum safnaði Sigfús M. Johnsen í Vestmannaeyjum sumarið 1907.

17) Beinunum safnaði Sigfús M. Johnsen í Vestmannaeyjum sumarið 1907.

18) Sjá og Eyjabálk í blaðinu Skildi 1924.

18) Sjá og Eyjabálk í blaðinu Skildi 1924.

Leiðsagnarval