„Blik 1938, 1. tbl./Eg sigli burt“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: Helgi Sæmundsson: EG SIGLI BURT. Yfir sundin sumarblá<br> sigli ég frá ströndum.<br> Legg á höf með bros á brá.<br> Blæs í seglum þöndum.<br> Svala minni þyrstu þrá,<b...)
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 2. október 2009 kl. 17:30

Helgi Sæmundsson:

EG SIGLI BURT.

Yfir sundin sumarblá
sigli ég frá ströndum.
Legg á höf með bros á brá.
Blæs í seglum þöndum.
Svala minni þyrstu þrá,
þeirri, sem ég dýpsta á.
— Stefni burt í leit að nýjum löndum.

Bláan gyllir sólin sæ;
sumar er að völdum.
Sigli ég í blíðum blæ
burt — á hafsins öldum.
Ef ég ströndu nýrri næ,
njóta vökudrauma fæ,
á ég von á fjársjóð — áður földum.

Kveð ég land í þýðum þey;
þrái sjóðinn falda.
Eftir bíður bláeyg mey;
burtu samt skal halda.
Yfir djúpið flýt þér fley,
feigðarnöf þér grandar ei.
— Hverri voð í völdum byr skal tjalda!