„Blik 1937, 3. tbl./Jón Sigurðsson“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: JÓN SIGURÐSSON.
Af öllum lýðum, sem landið byggja
þú leystir kúgarans bönd.
Birtir í ljóma íslenskum augum
ónumin framtíðarlönd.
Þú sóttir eldin...) |
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 1. október 2009 kl. 17:53
JÓN SIGURÐSSON.
Af öllum lýðum, sem landið byggja
þú leystir kúgarans bönd.
Birtir í ljóma íslenskum augum
ónumin framtíðarlönd.
Þú sóttir eldinn, sem Ísland skorti,
hið andlega helga bál.
Þú áttir kraftinn, og kynngiglæður
þú kveiktir í þjóðarsál.
Þú áttir vaxtarþrá vökumannsins
að vinna hið mikla starf:
að færa börnum framtíðarinnar
frelsi og hróður í arf.
Lýðum Íslands var hugsjón þín helguð,
hjarta þitt vermdist af þrá.
Þú háðir baráttu brautryðjandans
og braut þín til sigurs lá.
Þú sóttir djarfur að miklu marki
— þín minning er stjarna vor,
því aldrei fyrnist þitt fagra lífsstarf
né fenna þín manndómsspor.
Og nafn þitt lifir í landsins sögu
— lifir sem feðranna mál.
Þú kveiktir eldinn, sem aldrei dvínar
í íslenskri þjóðarsál.
Helgi Sœmundsson (17 ára) 2. b.