„Grænahlíð 4“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 12: Lína 12:
* [[Friðrik Ásmundsson]], ''Grænahlíð'', samantekt unnin 2002.
* [[Friðrik Ásmundsson]], ''Grænahlíð'', samantekt unnin 2002.
}}
}}
[[Flokkur:Hús]]
[[Flokkur:Hús sem fóru undir hraun]]
[[Flokkur:Grænahlíð]]
[[Flokkur:Grænahlíð]]
{{Byggðin undir hrauninu}}

Útgáfa síðunnar 6. júlí 2007 kl. 09:36

Grænahlíð 4

Hús Sigurðar Arnars Sighvatssonar í Ási og Soffíu Björnsdóttur frá Bólstaðarhlíð. Lóðarleigusamningur var undirritaður 18. maí 1956. Þau Arnar og Soffa byrjuðu að byggja í Bólstaðarhlíðartúninu og smáskika úr Laufástúninu í maí 1955.

Þau fluttu inn í október 1957 með soninn Sighvat fæddan 10. október 1954. Ingibjörg dóttir þeirra fæddist 13. febrúar 1972. Arnar og Soffía voru fyrst að flytja í Grænuhlíðina. Þau urðu að bíða með flutninginn í hálfan mánuð vegna þess að skolplögn var ekki komin í götuna. Ingibjörg í Bólstaðarhlíð móðir Soffíu fluttist til þeirra 1971.

Húsið fór undir hraun í gosinu 1973


Heimildir