„Tíundi áratugurinn“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 13. júní 2005 kl. 09:53

Kvótinn minnkar

Á tíunda áratugnum fór bolfiskskvóti fiskiskipaflotanns ört minnkandi var þannig komið að árskvóti meðal vertíðarbáta var töluvert minni en fiskaðist á vertíðinni einni saman á sams konar bát 10 til 15 árum áður. En frágangur aflans í kjölfar karavæðingar varð til þess að aflinn varð verðmætari.

Eftir að kvótinn minnkaði svo mikið þá jókst bæði leigu- og kaupverðið á honum. Þetta olli því að sumir útgerðamenn létu sjómennina taka þátt í kvótakaupum og urðu margir sjómenn fyrir tekjuskerðingu vegna þessa.

Miklar breytingar hafa átt sér stað í skipaflota Eyjamanna síðustu árin. Skipin hafa verið lengd,breikkuð og byggt yfir þau.