„Lukka“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
1.800 bætum bætt við ,  20. júlí 2022
ekkert breytingarágrip
(Bætt við upplýsingum)
Ekkert breytingarágrip
 
(5 millibreytingar ekki sýndar frá 2 notendum)
The content of the old revision is missing or corrupted.
Lína 1: Lína 1:
 
Húsið '''Lukka''' stendur utan byggðar, við [[Stremba|Strembu]] en er skráð nr. 1 við [[Dalavegur|Dalaveg]]. Fjölskylda [[Guðrún Runólfsdóttir (Sveinsstöðum)|Guðrúnar Runólfsdóttur]] frá [[Sveinsstaðir|Sveinsstöðum]] byggði húsið og hófst byggingin 1932 en lauk 1934. Guðrún átti Strembutúnið þar sem byggt var. Synir Guðrúnar, [[Sveinn Magnús Sveinsson]], forstjóri Timburverslunarinnar Völundar í Reykjavík og [[Ársæll Sveinsson]], útgerðarmaður á [[Fagrabrekka|Fögrubrekku]], munu hafa verið hvatamenn að byggingunni. Húsið var ætlað systur þeirra [[Sigurveig Sveinsdóttir (Lukku)|Sigurveigu]] og börnum hennar en þau voru að flytja til Eyja frá Skálum á Langanesi. Sagt er að þegar Sigurveig, sem ævinlega var kölluð Veiga, flutti í nýja húsið, hafði hún hrópað í gleði sinni: „Ég er svo hamingjusöm með þetta hús að ég skíri það bara Lukku.“ Sigurveig bjó í Lukku til ársins 1949 er hún flutti til Reykjavíkur. Þá eignaðist húsið [[Stefán Vilhjálmsson]] en seldi það síðan árið 1951 [[Ingólfur Guðjónsson (Lukku)|Ingólfi Guðjónssyni]] frá [[Skaftafell]]i í Eyjum. Árið 1976 eignaðist svo [[Brynjólfur Sigurbjörnsson]] húsið. Árið 2005 voru eigendur Lukku [[Kristín Valtýsdóttir]] og [[Gunnar Árnason]] og hafa m.a. rekið þar hestaleigu.
Húsið Lukka öðlaðist talsverða frægð árið 2005 þegar byrjað var að sýna danska framhaldsmyndaþáttinn [[Örninn]] í sjónvarpi. Aðalpersónan í þeim þætti, lögreglumaðurinn Hallgrímur Örn Hallgrímsson, er íslenskur, fæddur í Vestmannaeyjum og æskuheimili hans í Lukku. Mörg myndskeið í þáttunum sýna einmitt húsið.
[[Flokkur:Hús]]
[[Flokkur:Dalavegur]]
[[Flokkur:Ofanbyggjarar]]

Leiðsagnarval