„Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1975/Loðnir Leppar“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
(Ný síða: <big><big>LOÐNIR LEPPAR</big></big> Loðna er sagt að lifi í sjó,<br> loðna þorskinn seður,<br> loðna í hverri liggur þró,<br> loðna uppi veður.<br> Loðinn gerir lófa...) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 28. ágúst 2015 kl. 10:53
LOÐNIR LEPPAR
Loðna er sagt að lifi í sjó,
loðna þorskinn seður,
loðna í hverri liggur þró,
loðna uppi veður.
Loðinn gerir lófa manns
loðnan fagurskæra;
hún byggir síðan húsið hans
og hamingjuna kæra.
Hún breytist líka í bílaflóð,
sem brunar eftir vegum,
en bensíninu brennir þjóð
í bílum skemmtilegum.
Ef loðin gerast loforð mín,
lævís, hál og ýtin,
sú loðna - - góði gættu þín,
- - er gráðug eins og híttin.
- Sr. Þorsteinn L. Jónsson