Pétur Laxdal Sigurðsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Pétur Laxdal Sigurðsson, húsasmiður fæddist 6. apríl 1954 að Heiðarvegi 22.
Foreldrar hans voru Sigurður Rúdólf Jóhannsson frá Höfðahúsi við Vesturveg 18, verkamaður, vaktmaður, f. 14. október 1930, d. 2. janúar 1997, og kona hans Kristín Björg Pétursdóttir, húsfreyja, f. 28. desember 1930.

Pétur var með foreldrum sínum, við Heiðarveg 22, og Brimhólabraut 32.
Hann lærði trésmíði, varð húsasmiður.
Þau Helga giftu sig 1981, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í Rvk.

I. Kona Péturs, (5. september 1981), er Helga Guðlaugsdóttir frá Kirkjubæjarbraut 22, húsfreyja, f. 24. janúar 1956.
Börn þeirra:
1. Kristín Björg Pétursdóttir, f. 22. maí 1974 í Rvk.
2. Ívar Pétursson, f. 15. júlí 1982 í Rvk.
3. Linda Pétursdóttir, f. 23. október 1990 í Rvk.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Heimaslóð.
  • Íslendingabók.
  • Prestþjónustubækur.
  • Valdaætt. Niðjatal Valda Ketilssonar bónda á Sauðhúsvöllum undir Eyjafjöllum og k.h. Katrínar Þórðardóttur. Magnea Árnadóttir. Handrit 1992.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.