Aðalheiður Birgisdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Aðalheiður Birgisdóttir húsfreyja, bankastarfsmaður fæddist 24. febrúar 1959.
Foreldrar hennar Kári Birgir Sigurðsson, sjómaður, vélstjóri, útgerðarmaður, f. 3. desember 1931, og kona hans Jóna Sigríður Kristjánsdóttir, húsfreyja, verslunarmaður, f. 7. október 1931, d. 11. apríl 2019.

Börn Jónu Sigríðar og Kára Birgis:
1. Ágúst Birgisson, lögreglumaður, f. 19. september 1950. Fyrrum kona hans Jóhanna Gísladóttir. Kona hans Sigrún Ólafsdóttir.
2. Kristján Birgisson, sjómaður, vélstjóri, f. 20. maí 1952. Kona hans Bjarney María Gústavsdóttir.
3. Aðalheiður Birgisdóttir, húsfreyja, bankastarfsmaður, f. 24. febrúar 1959. Maður hennar Angantýr Agnarsson.

Þau Angantýr giftu sig 1981, eignuðust þrjú börn. Þau búa í Hafnarfirði.

I. Maður Aðalheiðar, (18. apríl 1981), er Angantýr Agnarsson, bifvélavirki, verkstjóri, f. 1. janúar 1957.
Börn þeirra:
1. Agnar Angantýsson, f. 21. janúar 1980 í Hfirði. Fyrrum sambúðarkona Valgerður Bára Guðmundsdóttir. Sambúðarkona hans Árdís Ármannsdóttir.
2. Jóna Sigríður Angantýsdóttir, f. 7. október 1986 í Rvk. Maður hennar Ragnar Böðvarsson.
3. Kári Birgir Angantýsson, f. 14. ágúst 1988 í Rvk. Kona hans Arnbjörg Edda Kormáksdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.