Ástvaldur Snæfeld Eiríksson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ástvaldur Snæfeld Eiríksson frá Bygggarði á Seltjarnarnesi, sjómaður fæddist 25. júlí 1928 og lést 26. ágúst 2012.
Foreldrar hans voru Eiríkur Sveinsson sjómaður, f. 8. júlí 1884, d. 27. nóvember 1970, og Halldóra Árnadóttir, f. 4. júní 1892, d. 15. febrúar 1979.

Ástvaldur var sjómaður.
Þau Guðbjörg María hófu sambúð, eignuðust fimm börn. Þau bjuggu á Bakka við Flatir 12, á Oddeyri við Flatir 14, síðan á Stokkseyri og í Rvk.
Guðbjörg lést 1966 og Ástvaldur 2012.

I. Sambúðarkona Ástvaldar var Guðbjörg María Helgadóttir, húsfreyja, f. 6. desember 1923 á Ólafsfirði, d. 7. júlí 1966.
Börn þeirra:
1. Halldóra Ástvaldsdóttir, f. 7. janúar 1955 á Bakka við Flatir 12, d. 15. ágúst 1977.
2. Ásdís Hrönn Ástvaldsdóttir húsfreyja, f. 23. desember 1955 á Bakka við Flatir 12.
3. Magnús Ástvaldsson, f. 15. apríl 1957.
4. Eygló Ástvaldsdóttir húsfreyja, framkvæmdastjóri f. 22. ágúst 1958, d. 15. febrúar 2003.
5. Svanhvít Ástvaldsdóttir húsfreyja, f. 29. september 1959.
Barn Guðbjargar Helgu og Pálma Sigurðssonar frá Skjaldbreið.
6. Ragna María Pálmadóttir húsfreyja í Þorlákshöfn, f. 27. mars 1941.
Barn Guðbjargar Helgu og Úlfars Valbergs Þorkelssonar frá Borgarnesi.
7. Amalía Kolbrún Úlfarsdóttir, f. 6. september 1945, d. 14. október 2023.
Barn Guðbjargar Helgu og Jóns Kristinssonar frá Mosfelli.
8. Guðríður Magnea Jónsdóttir, f. 1. júlí 1948.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Heimaslóð.
  • Íslendingabók.
  • Prestþjónustubók.
  • Valdaætt. Niðjatal Valda Ketilssonar bónda á Sauðhúsvöllum undir Eyjafjöllum og k.h. Katrínar Þórðardóttur. Magnea Árnadóttir. Handrit 1992.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.