Þröstur Egill Kristjánsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Þröstur Egill Kristjánsson, lögreglumaður, yfirmaður sérsveitar lögreglunnar fæddist 9. júlí 1965 í Eyjum.
Foreldrar hans Kristján Egilsson, pípulagningamaður, forstöðumaður Náttúrugripasafnsins í Eyjum, f. 5. júlí 1939, og kona hans Ágústa Þyrí Friðriksdóttir, húsfreyja, kennari, ritari, f. 27. október 1944.

Börn þeirra:
1. Þröstur Egill Kristjánsson lögreglumaður, yfirmaður sérsveitar lögreglunnar, f. 9. júlí 1965. Kona hans er Guðbjörg Guðrún Jakobsdóttir húsfreyja, bankastarfsmaður.
2. Logi Jes Kristjánsson lögreglumaður, kennari við Lögregluskólann, grafískur hönnuður, f. 21. apríl 1972. Kona hans Katrín Mjöll Halldórsdóttir sálfræðingur.

Þau Guðbjörg Guðrún giftu sig 1995, eignuðust tvö börn.

I. Kona Þrastar, (8. júlí 1995), er Guðbjörg Guðrún Jakobsdóttir, húsfreyja, f. 2. október 1969. Foreldrar hennar Jakob Kolbeins Þorsteinsson, f. 6. september 1944, og Hanna Kristín Sigmarsdóttir, f. 27. ágúst 1948.
Börn þeirra:
1. Jakob Kristján Þrastarson, f. 17. júlí 1996 í Rvk.
2. Kolbeinn Egill Þrastarson, f. 12. október 1999 í Rvk.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.