Óskar Eyjólfsson (Laugardal)
Fara í flakk
Fara í leit
Óskar Eyjólfsson fæddist 10. janúar 1917 og lést 25. febrúar 1953. Hann var formaður á Tjald VE 225 og á Guðrúnu. Óskar varð aflakóngur þrjú ár í röð 1950, 51 og 52. Óskar fórst með Guðrúnu.
Kona hans var Ásta Þórðardóttir. Dóttir þeirra var Þórða Berg.
Loftur Guðmundsson samdi formannsvísu um Óskar:
- Þá er aldan iðukvik
- og æðiris á faldi
- ef Óskar hikar augnablik
- út til miða á Tjaldi.
Óskar Kárason samdi einnig formannavísu um Óskar:
- Guðrúnu á grimman sjá
- gildur Óskar setur.
- Kóngur afla kappinn sá
- kallast hér í vetur.
Myndir
Heimildir
- Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
- Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1995.