Árni Jónsson (Görðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Árni Jónsson í Görðum, fæddist í Garðakoti í Mýrdal 5. maí 1874 og lést í Eyjum 8. ágúst 1954.
Foreldrar hans voru Jón Árnason, f. 1840, og k.h. Guðríður Eyjólfsdóttir, f. 1842.

Börn Guðríðar og Jóns,- í Eyjum voru:
1. Friðrik Jónsson á Látrum, sjómaður, skipstjóri, útgerðarmaður, f. 7. desember 1868, d. 29. október 1940.
2. Árni Jónsson sjómaður, skipstjóri, útgerðarmaður, f. 5. maí 1874, d. 8. ágúst 1954.
3. Guðrún Jónsdóttir vinnukona, síðar í Vesturheimi, f. 20. maí 1876, d. 30. mars 1934.
4. Þorsteinn Jónsson sjómaður, f. 1. september 1877.
5. Ólafur Jónsson á Landamótum, sjómaður, vélstjóri, útgerðarmaður, f. 4. nóvember 1883, drukknaði 5. janúar 1916.

Árni var hjá foreldrum sínum í Pétursey 1890, hjá þeim á Eyjarhólum 1901 og fluttist þaðan til Eyja 1907.
Hann vann þar við sjómennsku, var formaður á vélbát 1910, varð meðeigandi bræðra sinna Friðriks og Ólafs og fleiri, að Íslendingi VE-161 1912.
Kona Árna (1910) var Kristín Ögmundsdóttir húsfreyja, f. 1885.
Hjá þeim í Görðum 1910 er Guðrún Jónsdóttir systir Árna, en 1920 voru m.a. hjá þeim Guðríður móðir Árna, Helga Arinbjarnardóttir móðir Kristínar húsfreyju og Jakob Benediktsson stjúpfaðir Kristínar.
Þar voru tvö börn: Haukur L. Johnsen 6 ára og Sigurjóna Ólafsdóttir 4 ára. Þau voru fósturbörn hjónanna.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.