Viðar Elíasson
Fara í flakk
Fara í leit

Viðar Elíasson er fæddur 1. júlí 1956.
Kona Viðars er Guðmunda Áslaug Bjarnadóttir. Þau eiga fjögur börn:
Börn þeirra:
- 1. Bjarni Geir Viðarsson, læknir, f. 11. október 1979.
- 2. Sindri Viðarsson, sjávarútvegsfræðingur, f. 25. desember 1982.
- 3. Margrét Lára Viðarsdóttir, sálfræðingur og fv. knattspyrnukona, f. 25. júlí 1986.
- 4. Elísa Viðarsdóttir, matvæla- og næringarfræðingur , f. 26. maí 1991.
Þau byggðu húsið við Strembugötu 8. Þau fluttu þaðan í Litlagerði 27.
Viðar lék knattspyrnu með ÍBV um árabil, bæði í yngri flokkum og í meistaraflokki. Viðar var formaður knattspyrnudeildar ÍBV frá 2002-2007. Hann hlaut silfurmerki KSÍ árið 2007 fyrir störf sín í þágu knattspyrnu.
Viðar og Guðmunda eiga og reka fiskvinnslufyrirtækið Fiskvinnsla VE og gera út bátinn Narfa.