Tíundi áratugurinn

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Kvótinn minnkar

Bátur að sigla úr Friðarhöfn

Á tíunda áratugnum fór bolfiskkvóti fiskiskipaflotanns ört minnkandi. Var þannig komið að árskvóti meðalvertíðarbáta var töluvert minni en fiskaðist á vertíðinni einni saman á sams konar bát 10 til 15 árum áður. En frágangur aflans í kjölfar karavæðingar varð til þess að aflinn varð verðmætari.

Eftir að kvótinn minnkaði svo mikið þá jókst bæði leigu- og kaupverðið á honum. Þetta olli því að sumir útgerðamenn létu sjómennina taka þátt í kvótakaupum og urðu margir sjómenn fyrir tekjuskerðingu vegna þessa.

Miklar breytingar hafa átt sér stað í skipaflota Eyjamanna síðustu árin. Skipin hafa verið lengd, breikkuð og byggt yfir þau.