Sveinbjörn Einarsson (Þorlaugargerði)
Fara í flakk
Fara í leit
Sveinbjörn Einarsson fæddist að Þorlaugargerði í Vestmannaeyjum 12. júní 1890. Foreldrar hans voru Einar Sveinsson og Guðríður Helgadóttir.
Sveinbjörn byrjaði ungur sjómennsku. Árið 1926 var hann formaður á Hebron í eina vertíð en hann starfaði aðallega sem vélamaður.
Sveinbjörn lærði trésmíði á yngri árum og eftir að hann hætti sjómennsku stundaði hann þá iðn auk þess sem hann veitti ungum mönnum tilsögn í þeirri grein. Á fjórða áratug síðustu aldar keypti hann húsið Hljómskálann og var með smíðaverkstæði þar í kjallaranum.
Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Ritverk Árna Árnasonar/Sveinbjörn Einarsson (Þorlaugargerði).
Heimildir
- Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.