Steinn Sigurðsson (skólastjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Steinn Sigurðsson


Steinn skólastjóri. Málverk eftir Guðna Hermansen.

Steinn Sigurðsson var skólastjóri í Barnaskóla Vestmannaeyja árin 1904-1914. Steinn var fæddur 24. apríl 1872 að Fagurhóli í Austur-Landeyjum. Þar ólst hann upp við verkamannavinnu fyrir fátækan föður sinn. Ekki fékk hann neina fræðslu nema þá er hann kenndi sjálfum sér. Hann þyrsti í nám og í óþökk föður síns hóf hann nám við Flensborgarskólann í Hafnarfirði. Þaðan lauk hann kennaraprófi vorið 1893. Næstu ár vann hann sem kennari og ferðaðist milli bæja.

Það var árið 1903 að Steinn flutti til Vestmannaeyja. Hóf hann störf sem farkennari og fólst það í að kenna 7-14 ára börnum sem ekki fengu vist í skólanum sökum rúmleysis. Árið eftir var hann svo ráðinn sem skólastjóri Barnaskóla Vestmannaeyja eftir að Séra Oddgeir Guðmundsen hætti störfum. Sama haust og Steinn hóf störf fluttist Barnaskólinn í nýtt hús. Þá hóf Högni Sigurðsson einnig störf. Kennaraliðið, samsett af Steini og Högna ásamt Eiríki Hjálmarssyni átti eftir að verða farsælt saman og voru þeir samhuga í að efla skólastarfið.

Steinn Sigurðsson var góður kennari og hélt hann aga í bekknum. Hann fór ýmsar nýstárlegar leiðir í kennslu sinni, t.d. lét hann nemendur semja og skrifa íslenskuritgerðir um efni sem hann sjálfur valdi. Ekki þóttu þetta létt verkefni en nemendur sáu mikilvægi þessara ritgerðaskrifa eftir á. Ekki voru það einungis ritgerðir sem hann var brautryðjandi í, heldur samdi hann leikrit og lét nemendur leika fyrir almenning. Skemmtanir hélt hann á hverju skólaári og þegar viðraði fóru nemendur á skauta á Vilpu. Ekki tóku foreldrar vel í allt sem Steinn gerði og fannst frjálslyndið einum of mikið.

Sjálfur var Steinn bindindismaður á vín og tóbak og beitti hann sér fyrir málefnum og velferðarmálum ungs fólks. Hann hjálpaði til við íþróttir, þá sérstaklega sund, og var formaður Ungmennafélags Vestmannaeyja. Þá var Steinn hvatamaður að byggingu sundskála á Eiðinu árið 1913.

Eiginkona Steins hét Agatha Þórðardóttir. Þau byggðu sér hús við Njarðarstíg árið 1907 og kallaðist það Sólheimar.

Í lok skólaársins 1914 samþykkti skólanefnd Vestmannaeyja að segja Steini upp. Þetta mun hafa gerst eftir falsásakanir sem Steinn fékk upp á sig. Engin ástæða er gefin fyrir uppsögninni og ekki fékkst upp úr neinum nemanda skiljanleg ástæða fyrir henni. Uppsögnin kom illa niður á Steini og greru sár hans aldrei eftir þetta. Fluttist hann ásamt konu sinni til Reykjavíkur skömmu eftir atburðina. Tók hann að sér ýmis störf þangað til hann varð stór hluthafi í hlutafélaginu Dvergi í Hafnarfirði og var áhrifaríkur þar á bæ.

Aldrei minntist hann á veru sína í Vestmannaeyjum. Sárin voru djúp og er eins og hann hafi reynt að gleyma þessum tíma í lífi sínu.

Steinn lést 18. ágúst 1940 og lést Agatha kona hans 13 árum síðar á 91. aldursári.



Heimildir