Steingrímur Björnsson
Fara í flakk
Fara í leit
Steingrímur Björnsson fæddist 1. febrúar 1913 og lést 17. september 1983. Foreldrar hans voru Björn Finnbogason og Lára Guðjónsdóttir. Hann bjó alla tíð í Kirkjulandi, húsinu sem faðir hans byggði.
Hann var m.a. formaður á Jökli VE 163 og á Tý.
Loftur Guðmundsson samdi eitt sinn formannsvísu um Steingrím:
- Auðnuskap og ötul mund
- æ mun stefnu valda
- en Steingrímur Jökli stilltur í lund
- stýrir um bárufalda.
Óskar Kárason samdi einnig formannavísu um Steingrím:
- Hríð þó standi stafna á
- Steini Týr á veiðir,
- Kirkjulandi kallar frá
- kvarna-dýr þá seyðir.
Myndir
Heimildir
- Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
- Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1995.