Soffía Birna Hjálmarsdóttir
Soffía Birna Hjálmarsdóttir, húsfreyja, verkakona fæddist 10. desember 1966.
Foreldrar hennar Hjálmar Þorleifsson, rafvirkjameistari, f. 15. desember 1927, d. 22. janúar 2011, og kona hans Kristín Björnsdóttir, húsfreyja, f. 22. maí 1925, d. 24. apríl 2022.
Börn Kristínar og Hjálmars:
1. Hjálmfríður Ingibjörg Hjálmarsdóttir (Inga Fríða), Áshamri 16, húsfreyja, bæjarstarfsmaður, f. 2. apríl 1955 í Bólstaðarhlíð. Maður hennar Júlíus Valdimar Óskarsson.
2. Ólafur Hjálmarsson hagfræðingur, hagstofustjóri, f. 6. febrúar 1957 í Bólstaðarhlíð. Kona hans Sigríður Anna Einarsdóttir.
3. Þorleifur Dolli Hjálmarsson rafiðnfræðingur í Reykjavík, f. 27. desember 1961. Kona hans Sigurdís Harpa Arnarsdóttir.
4. Soffía Birna Hjálmarsdóttir húsfreyja, verkakona í Eyjum, f. 10. desember 1966. Fyrrum maður hennar Þorvaldur Tolli Ásgeirsson. Fyrrum sambúðarmaður hennar Sigurður Steinar Konráðsson.
Þau Þorvaldur Tolli giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau skildu.
Þau Sigurður Steinar hófu sambúð. Þau skildu.
Soffía Birna býr við Áshamar 75.
I. Fyrrum maður Soffíu Birnu er Þorvaldur Tolli Ásgeirsson, sjómaður, sölu- og markaðsstjóri, f. 30. nóvember 1971. Foreldrar hans Ásgeir Ingi Þorvaldsson, f. 16. júlí 1948, d. 16. október 2020, og Sigrún Pálsdóttir, f. 1. nóvember 1951.
Börn þeirra:
1. Ásgeir Þór Þorvaldsson, f. 10. september 1995.
2. Jökull Elí Þorvaldsson, f. 2. maí 1999.
3. Kristín Inga Þorvaldsdóttir, f. 27. nóvember 2001.
II. Fyrrum sambúðarmaður Soffíu Birnu er Sigurður Steinar Konráðsson, f. 32. mars 1973. Foreldrar hans Konráð Alexander Ottósson, f. 25. júlí 1948, og Ásthildur Sigurðardóttir, f. 15. júní 1952.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Soffía Birna.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.