Skátafélagið Faxi
Fara í flakk
Fara í leit
Skátafélagið Faxi var stofnað árið 1938. Félagsforingi þess er Páll Zóphóníasson
Saga
Skátafélagið Faxi var stofnsett 22. febrúar 1938 og voru það 24 drengir á aldrinum 12-14 ára sem stóðu að stofnuninni. Fyrsti félagsforingi þeirra var Friðrik Jesson.
Húsnæðismál
Skátafélagið er í húsnæði við Faxastíg ásamt Björgunarfélagi Vestmannaeyja.
Skátastykkið
Skátastykkið var byggt í krikanum í suðvesturhorni flugvallarins árið 1998. Húsið er byggt í stíl við gamla íslenska burstabæi, með þremur burstum og torfþaki. Burstabærinn ber heitið Hraunprýði eftir fyrri skála félagsins sem var í gamla hrauninu.
Félagsforingjar
- 1938 Friðrik Jesson
- 1939 - 1941 Þorsteinn Einarsson
- 1942 - 1944 Séra Jes A. Gíslason
- 1945 - 1947 Sigurjón Kristinsson
- 1948 - 1949 Jón Runólfsson
- 1950 - 1953 Óskar Þór Sigurðsson
- 1954 Hafsteinn Ágústsson
- 1954 Ólafur Oddgeirsson
- 1954 Vigfús Jónsson
- 1955 - 1959 Séra Jóhann Hlíðar
- 1960 - 1964 Þráinn Einarsson
- 1965 Jón Ögmundsson
- 1966 - 1969 Halldór Ingi Guðmundsson
- 1969 - 1974 Jón Ögmundsson
- 1974 - 1983 Vigdís Rafnsdóttir
- 1983 - 1986 Kristín Sigurðardóttir
- 1986 - Páll Zóphóníasson
- - 2014 Alma Eðvaldsdóttir
- 2014 - Frosti Gíslason