Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1974/ Bitavísa. Áttæringurinn Vestmannaey
Fara í flakk
Fara í leit
Séra Páll Jónsson skáldi var prestur að Kirkjubæ í Vestmannaeyjum 1822-1837. Hann var af sumum talinn kraftaskáld. Eru til eftir hann nokkrar lausavísur. Páll skáldi orti einnig bitavísur og um áttæringinn Vestmannaey, sem til var í Vestmannaeyjum um miðja síðustu öld, orti hann:
Vænti ég fleyið Vestmannaey að beiti,
vogar-skundi, er liður stund að-reiti,
- eignar beimi
- aflann teymi
- upp úr geimið
- og heilum heim að fleyti.
- eignar beimi
(Sögur og Sagnir úr Vestmannaeyjum).