Sigurður Hermann Helgason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigurður Hermann Helgason, pípulagningameistari fæddist 20. apríl 1922 í Lambhaga við Vesturveg 19 og lést 5. ágúst 2000.
Foreldrar hans voru Helgi Backmann Ingimundarson frá Miðey í A.-Landeyjum, skipstjóri, verkamaður, f. 17. maí 1872, d, 27. nóvember 1952, og kona hans Jóna Guðrún Jónsdóttir frá Loðmundarfirði, húsfreyja, f. 4. desember 1885, d. 8. nóvember 1972.

Börn Jónu og Helga:
1. Sigurjón Bachmann Helgason, f. 8. nóvember 1907 á Hverfisgötu 58B í Reykjavík, síðast í Kópavogi, d. 16. júní 1977.
2. Árni Ingimundur Helgason Bachmann sjómaður, vélstjóri, síðast í Njarðvík, f. 23. september 1909 á Seyðisfirði, d. 18. febrúar 1988.
3. Sigurður Þórarinn Helgason Bachmann bifreiðastjóri í Keflavík, f. 25. júlí 1914 á Seyðisfirði, d. 10. október 1994.
4. Svanhvít Helgadóttir Smith húsfreyja í Reykjavík, f. 18. október 1915 á Seyðisfirðir, d. 30. október 1993.
5. Ólafía Helgadóttir húsfreyja í Hafnarfirði, f. 13. júlí 1917 á Seyðisfirði, d. 3. október 1971.
6. Þóra Hansína Helgadóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 25. nóvember 1920 í Lambhaga, d. 25. júní 1992. Maður hennar Baldur Svanhólm Ásgeirsson.
7. Sigurður Hermann Helgason, síðast í Reykjavík, f. 20. apríl 1922, d. 5. ágúst 2000.
8. Andvana drengur, f. 21. ágúst 1924.

Sigurður lærði pípulagnir, öðlaðist meistararéttindi.
Þau Jóhanna Elín giftu sig 1942, eignuðust eitt barn. Þau skildu.

I. Kona Sigurðar, (27. nóvember 1942, skildu), var Jóhanna Elín Erlendsdóttir frá Keflavík, húsfreyja, f. 1. júlí 1924, d. 4. júní 2001. Foreldrar hennar voru Erlendur Jónsson, f. 8. febrúar 1894, d. 3. desember 1980, og Oddný María Kristinsdóttir, f. 11. júní 1902, d. 11. júlí 1972.
Barn þeirra:
1. Jóhanna Ellý Sigurðardóttir, húsfreyja í Rvk, f. 25. júlí 1943. Maki hennar Júlíus Sigurðsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.