Sigurbjörg Stefánsdóttir (Boðaslóð)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigurbjörg Stefánsdóttir frá Heiðarvegi 20, húsfreyja fæddist 7. nóvember 1953.
Foreldrar hennar voru Stefán Helgason útgerðarstjóri, f. 16. maí 1929, d. 30. apríl 2000, og kona hans Sigríður Bjarnadóttir húsfreyja, f. 19. febrúar 1931, d. 1. október 2016.

Börn Sigríðar og Stefáns:
1. Guðrún Stefánsdóttir húsfreyja, kennari, f. 17. ágúst 1952. Fyrrum maður hennar Jón Bragi Bjarnason. Síðari maður Arnar Sigurmundsson.
2. Sigurbjörg Stefánsdóttir húsfreyja, f. 7. nóvember 1953. Maður hennar Páll G. Ágústsson.

Þau Páll giftu sig 1972, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu við Boðaslóð 23 1972, búa við Kleifahraun.

I. Maður Sigurbjargar, (1. júlí 1972), er Páll Guðjón Ágústsson frá Lögbergi við Vestmannabraut 56a, trésmíðameistari, húsvörður, f. 21. nóvember 1948.
Börn þeirra:
1. Íris Pálsdóttir, húsfreyja, f. 29. mars 1973. Maður hennar Rúnar Þór Birgisson.
2. Stefán Pálsson, rafvirki, rafeindavirki, f. 24. júní 1979. Kona hans Klara Louisa Benites Róbertsdóttir.
3. Hjalti Enok Pálsson, kennari, ökukennari, f. 3. febrúar 1990. Kona hans Arna Hlín Ástþórsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.