Sigurður Fríðhólm Sveinbjörnsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Sigurður Fríðhólm Sveinbjörnsson.

Sigurður Fríðhólm Sveinbjörnsson frá Núpsdal við Brekastíg 18, múrarameistari fæddist 5. september 1923 í Skógum við Bessastíg 8 og lést 31. október 1990.
Foreldrar hans voru Sveinbjörn Ágúst Benónýsson múrarameistari, f. á Kambshóli í Víðidalstungusókn í V.-Hún. 8. ágúst 1892, d. 31. maí 1965, og kona hans Hindrika Júlía Helgadóttir frá Húsatóftum í Grindavík, húsfreyja f. þar 2. júlí 1894, d. 27. febrúar 1968.

Börn Hindriku og Sveinbjarnar:
1. Sigurður Fríðhólm Sveinbjörnsson múrarameistari, f. 5. september 1923, d. 1. nóvember 1990.
2. Herbert Jóhann Sveinbjörnsson bifvélavirki, f. 9. júlí 1925, d. 12. janúar 1984.
3. Jóhanna Herdís Sveinbjarnardóttir húsfreyja, f. 14. janúar 1929 í Núpsdal, d. 25. október 2009.

Sigurður var með foreldrum sínum í æsku.
Hann varð gagnfræðingur í gagnfræðaskólanum 1940, fékk vélstjóraréttindi 1942. Hann lærði múraraiðn hjá Óskari Kárasyni, varð sveinn 1949, fékk síðar meistararéttindi.
Sigurður vann við iðn sína. Meðal bygginga, sem hann annaðist eru Heilbrigðisstofnunin (Sjúkrahúsið), Útvegsbankabyggingin, Fiskverkunarhúsið Eyjaberg, og fiskverkunarhúsið Fjölnir.
Sigurður lék í Lúðrasveitinni og samdi lög.
Þau Rebekka Katrín giftu sig 1948, eignuðust fimm börn. Þau bjuggu í fyrstu í Núpsdal, síðan á Brimhólabraut 3.
Sigurður lést 1990 og Rebekka 2017.

I. Kona Sigurðar Fríðhólms, (4. september 1948), var Rebekka Katrín Hagalínsdóttir frá Sætúni í Grunnavík, N.-Ís., húsfreyja, f. 15. september 1923 á Leiru þar, d. 26. mars 2017.
Börn þeirra:
1. Matthildur Sigurðardóttir húsfreyja á Háeyri, síðar á Hásteinsvegi 51 í Eyjum, f. 13. desember 1947. Maður hennar Björgvin Sigurjónsson.
2. Herdís Sigurðardóttir húsfreyja í Danmörku, f. 20. apríl 1949. Maður hennar Valur Valsson.
3. Rannveig Sigurðardóttir húsfreyja í Eyjum, f. 18. september 1950. Sambúðarmaður Hreiðar Páll Halldórsson.
4. Sveinbjörn Ágúst Sigurðsson sjómaður í Eyjum, f. 6. september 1954.
5. Anna María Sigurðardóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 16. febrúar 1965. Sambúðarmaður Finnbogi Ragnar Ragnarsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.