Sigríður Jónsdóttir (viðskiptafræðingur)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigríður Jónsdóttir húsfreyja, viðskiptafræðingur, starfsmaður á skattstofunni á Akranesi, fæddist 5. febrúar 1954.
Foreldrar hennar voru Jón Eiríksson frá Hesti í Borgarfirði, lögfræðingur, skattstjóri, f. 14. mars 1916, d. 21. október 1997, og síðari kona hans Bergþóra Guðjónsdóttir úr Reykjavík, húsfreyja, f. 21. apríl 1919, d. 30. júní 2004.

Barn Jóns og Önnu:
1. Þorbjörg Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur, kennari, f. 22. júní 1942. Fyrrum maður hennar Edvard S. Ragnarsson. Maður hennar Símon Ólason.
Barn Önnu Guðrúnar frá fyrra hjónabandi sínu og fósturbarn Jóns:
2. Halldór Gunnlaugsson, f. 27. desember 1930, d. 16. nóvember 1977.
Börn Jóns og Bergþóru
1. Sigríður Jónsdóttir viðskiptafræðingur, f. 5. febrúar 1954. Maður hennar Björn Lárusson.
2. Halldóra Jónsdóttir bókasafnsfræðingur, f. 27. október 1955. Maður hennar Valentínus Ólason.
3. Guðjón Jónsson verkfræðingur, f. 7. september 1957. Kona hans Sigurlaug Vilhelmsdóttir.
4. Eiríkur Jónsson viðskiptafræðingur, f. 27. maí 1959. Kona hans Sigrún Ragna Ólafsdóttir.

Sigríður eignaðist barn með Sigurði 1973.
Þau Björn giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau búa á Akranesi.

I. Barnsfaðir Sigríðar var Sigurður Kári Samúelsson sjómaður, f. 17. júlí 1951, d. 28. mars 1974.
Barn þeirra:
1. Bergþóra Sigurðardóttir, f. 22. mars 1973.

II. Maður Sigríðar er Björn Lárusson af Skaga, skrifstofumaður, f. 2. febrúar 1945. Foreldrar hans Lárus Björnsson, f. 3. maí 1916, d. 18. nóvember 2003, og Júlíanna Guðmundsdóttir, f. 30. júlí 1918, d. 7. nóvember 2010.
Börn þeirra:
2. Júlíanna Björnsdóttir, f. 7. apríl 1980.
3. Ragnheiður Björnsdóttir, f. 10. febrúar 1985.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.