Sigfús Hallgrímsson
Sigfús Hallgrímsson fæddist 8. september 1904 og lést 13. október 1991.
Sigfús var fyrsti kennari við Barnaskóla aðventista í Vestmannaeyjum. Sigfús stundaði nám við Alþýðuskólann á Eiðum 1921-1923 og lauk síðan kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands árið 1934.
Kenndi Sigfús við Barnaskóla aðventista í Vestmannaeyjum frá 1928-1941.
Heimildir
- Þorsteinn Þ. Víglundsson. Blik, ársrit Vestmannaeyja. 1965.
Frekari umfjöllun
Sigfús Hallgrímsson barnakennari, skólastjóri, forstöðumaður fæddist 8. september 1904 á Ytra-Garðshorni í Svarfaðardal og lést 13. október 1991.
Foreldrar hans voru Hallgrímur Kristjánsson bóndi, f. 12. september 1863, d. 18. desember 1930, og kona hans Pálína Pálsdóttir húsfreyja, f. 7. febrúar1866, d. 20. júní 1938.
Undir tvítugt fór Sigfús til framhaldsnáms við Héraðsskólann á Eiðum og útskrifaðist þaðan að námi loknu 1921-1923. Þá lagði hann leið til Reykjavíkur og vann þar ýmis störf. Á þeim tíma kynntist hann Sjöunda dags aðventistum og gekk í söfnuð þeirra 27. október 1927. Hann var fæddur skóla- og lærdómsmaður og sneri sér að kennslu. Segja má, að hann hafi verið frumkvöðull í skólamálum aðventista á Íslandi. Árið 1928 stofnaði hann barnaskóla aðventista í Vestmannaeyjum og stýrði honum fjögur ár. Þá fór hann í Kennaraskóla Íslands 1932 til að afla sér fullgildrar kennaramenntunar og útskrifaðist þaðan árið 1934. Barnaskóla aðventista í Reykjavík stofnaði hann árið 1942, og síðar var hann skólastjóri Hlíðardalsskóla eitt ár í fjarvist þáverandi skólastjóra. Allt ævistarf sitt helgaði Sigfús aðventkirkjunni, fór víða um land og greip á mörgum starfanum sem skólastjóri, kennari, prestur, deildarstjóri, safnaðarformaður, bóksali, fyrirlesari og útbreiðsluprédikari. Þannig var mikil hreyfing á honum og fjölskyldu hans í starfi og oft flutt búferlum.
Þau Sigurlaug Kristín giftu sig 1929, eignuðust eitt barn. Sigurlaug lést 1949.
Þau Kristjana giftu sig, eignuðust ekki barn saman. Þau bjuggu síðast á Kumbaravogi á Stokkseyri.
I. Kona hans var Sigurlaug Kristín Sigurðardóttir, húsfreyja, f. 29. ágúst 1893, d. 12. janúar 1949.
Barn þeirra:
1. Anna Sigfúsdóttir Johansen, f. 14. mars 1930, d. 9. september 2018.
II. Síðari kona Sigfúsar, (10. október 1952), er Kristjana Steinþórsdóttir húsfreyja.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Morgunblaðið. Minning Sigfúsar.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.