Ritverk Árna Árnasonar/Sigfús Árnason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Sigfús Árnason

Kynning.

Sigfús Árnason tónlistarfrömuður, alþingismaður um skeið, póstfulltrúi, bóndi og bátsformaður á Löndum, fæddist 10. september 1856 og lést 5. júní 1922.
Foreldrar hans voru Árni Einarsson bóndi og alþingismaður á Vilborgarstöðum, f. 12. júní 1824, d. 19. febrúar 1899, og kona hans Guðfinna Austmann húsfreyja, f. 1823, dáin 7. apríl 1897, Jónsdóttir prests Austmanns og konu hans, Þórdísar Magnúsdóttur húsfreyju að Ofanleiti.

Kona Sigfúsar, (skildu), var Jónína Kristín Nikólína Brynjólfsdóttir húsfreyja, f. 14. ágúst 1856, d. 16. nóvember 1906, preststs að Ofanleiti Jónssonar og konu hans Ragnheiðar Jónsdóttur.
Börn Sigfúsar og Jónínu voru:
1. Ragnheiður Stefanía yfirhjúkrunarfræðingur Vestanhafs, f. 1883.
2. Brynjólfur kaupmaður og tónlistarfrömuður, f. 1. mars 1885, d. 27. febrúar 1951.
3. Árni kaupmaður, f. 1887, d. 7. mars 1948.
4. Leifur tannlæknir, f. 1892, d. 25. febrúar 1947.

Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.

Sigfús var meðalmaður á hæð og ekki þrekinn, dökkhærður, fríður í andliti og ljós yfirlitum, fremur holdgrannur og liðlega vaxinn, enda fyrr meir snarpur og liðleikamaður. Hann var fremur daufur í skapi, orðvar og enginn ofstopamaður, en hæggerður.
Sigfús var allmjög við fuglaveiðar og var talinn vel meðalgóður að veiða, nokkuð þaulsætinn og rólegur. Hann var vellátinn af félögum sínum og talinn raungóður maður.
Sigfús var að lífsstarfi bóndi, póstafgreiðslumaður, alþingismaður 1893, organleikari Landakirkju, fór til Vesturheims 1904, kom aftur heim 1915, var lögregluþjónn um skeið o.fl.

Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Sigfús Árnason


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit


Heimildir