Ritverk Árna Árnasonar/Nokkrar lausavísur utan úr hafsauga
Fara í flakk
Fara í leit
- Á leið með mb ,,MUGGUR” til Stokkseyrar frá Vm. í þoku og ruglanda:
- Þokuskuggar efla ugg,
- ekki er hnugginn drengur.
- Aldan ruggar undir Mugg
- áfram kuggur gengur.
- Þokuskuggar efla ugg,
- Á leið með mb ,,MUGGUR” til Stokkseyrar frá Vm. í þoku og ruglanda:
- Kári sveigir geðið grett,
- gefst þá fegins hylli.
- Ránarmeyjar leika létt
- lands og Eyja milli.
- Beiðni um viðtal:
- Þú átt hvorki börn né bú
- og besta hefir tíma.
- Kjaftaðu við mig klukkan þrjú,
- karl minn. – Ekki í síma. -
Ætlaði norður, en fór í þess stað til Víkur. Hreppti rigningu, ferðapelinn tómur, en Mangi ætlaði að koma með hressingu.
- Hillu ranga rakst ég á,
- regn í fangið lemur.
- Þetta angur þokast frá,
- þegar Mangi kemur.
- Eitthvað dróst, að Mangi kæmi og virtist allt vonlaust um björg.
- Allt í kring er veðravos,
- vonin trauð og rotin.
- Enginn dropi, ekkert bros,
- öll er vonin þrotin.
- Eitthvað dróst, að Mangi kæmi og virtist allt vonlaust um björg.
- Um heimasætu á gististað, sem var feimin og fátöluð.
- Unga fríða faldaslóð,
- framtíð geymir mæta.
- Þórunn blíða, þögla fljóð,
- Þverár heimasæta.
- Um heimasætu á gististað, sem var feimin og fátöluð.
- Seint í kvöld ég kem til þín,
- kærleiksöldur fossa.
- Eru gjöldin alltaf mín
- og ógnarfjöldi kossa.
- Afmælisvísa til ungrar stúlku:
- Gesti fáðu og gleði í kvöld,
- gæfan náði framtíð þína.
- Á þessu láði lifðu í öld,
- lífið dáðu og vinsemd mína.
- Frá ferðalagi ,,Leynimel 13“ í sumar
- Símskeyti frá Siglufirði:
- Sólin gyllir grundir vel,
- gefur snilli og kæti.
- Landið hyllir Leynimel,
- lýður fyllir sæti.
- Símskeyti frá Mývatni:
- Slútnes breiðir faðminn fríða
- ferðalags er gengur ör.
- Hér er himins blessuð blíða,
- brosir sól við okkar för.
- Frá Fornahvammi:
- Sitjum hér við sólareld,
- sinnið hresst og allir glaðir.
- Á Akranesi verðum kveld.
- Augað gleðja nýir staðir.
Ein leikstjarna í ,,Leynimel 13“ fór á Laugalandsskóla. Almenn sorg ríkjandi á Leynimel 13. Gamanvísa þessi varð til þá, og var hún Dísa þá 18 ára.
- Viðlag: Í klúbbum þar sem Nillemand etc.
- Dísa litla er átján vetra draumafagur svanni
- í dag, og er að hverfa burtu Leynimelnum frá
- til Norðurlands og kynnast þar Laugalandsins ranni
- að laga mat og sauma kjóla og bleyjur börnin á.
- Er því nokkur furða, þó að margur felli tár
- af fólkinu á Leynimel. – Hún verður víst í ár.
- Ó, Dísa, er það nokkuð betra að fara á Laugaland
- en læra bara heima allt og flytja ,,inn á Sand“.