Ragnheiður Halldórsdóttir (Höfðabrekku)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ragnheiður Halldórsdóttir frá Kotmúla í Fljótshlíð, húsfreyja á Höfðabrekku og í Lambhaga fæddist 5. maí 1892 og lést 9. janúar 1979.
Foreldrar hennar voru Halldór Ólafsson bóndi, f. 26. ágúst 1849 á Grjótá í Fljótshlíð, d. 5. mars 1921, og kona hans Aðalheiður Sveinsdóttir frá Valdalæk í V-Hún., húsfreyja, f. þar 3. júlí 1854, d. 5. nóvember 1943.

Ragnheiður var hjá foreldrum sínum í Kotmúla, var hjú í Eystri-Garðsauka í Hvolhreppi 1910.
Hún flutti til Eyja 1912, var vinnukona í Hlíð.
Þau Magnús giftu sig 1922, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í Hlíð 1921, á Höfðabrekku við Faxastíg 15 1923 og enn 1941, síðan í Lambhaga við Vesturveg 19, bjuggu síðast í Hlunnavogi 12 í Reykjavík.
Magnús lést 1972 og Ragnheiður 1979.

I. Maður Ragnheiðar, (9. desember 1922), var Magnús Helgi Valtýsson frá Seli í A-Landeyjum, sjómaður, útgerðarmaður, f. 6. október 1894, d. 15. febrúar 1972.
Börn þeirra:
1. Aðalheiður Dóra Magnúsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 18. janúar 1923 á Höfðabrekku, d. 15. apríl 2018.
2. Guðbjörg Vallý Magnúsdóttir í Reykjavík, f. 4. október 1928 á Höfðabrekku.
3. Hjördís Magnúsdóttir í Reykjavík, f. 10. maí 1931, d. 27. ágúst 2019.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.