Páll Heiðar Högnason
Páll Heiðar Högnason frá Vík í Mýrdal, vélstjóri fæddist 22. september 1961.
Foreldrar hans Högni Klemensson verkamaður, bifreiðastjóri, f. 12. desember 1924 í Görðum í Mýrdal, d. 14. febrúar 2006, og kona hans Málfríður Eggertsdóttir húsfreyja, f. 10. október 1943 í Hraungerði í Álftaveri, d. 15. febrúar 2023.
Páll var með foreldrum sínum í æsku.
Hann lærði vélstjórn, verið sjómaður og var m.a. á Bergi VE.
Hann eignaðist barn með Sigrúnu 1981 og Þórdísi 1993.
Þau Ása giftu sig, eignuðust eitt barn. Þau búa í Dal við Kirkjuveg 35.
I. Barnsmóðir Páls Heiðars er Sigrún Hjörleifsdóttir húsfreyja, f. 25. ágúst 1962.
Barn þeirra:
1. Hjördís Inga Magnúsdóttir, tók sér föðurnafnið Magnúsdóttir, f. 6. október 1981.
II. Barnsmóðir Páls er Þórdís Jóelsdóttir Andersen, f. 21. ágúst 1972.
Barn þeirra:
2. Sandra Dís Pálsdóttir, f. 30. júní 1993.
III. Kona Páls Heiðars er Ása Birgisdóttir frá Reykjavík, hestaleigurekandi, f. 24. ágúst 1967.
Barn þeirra:
3. Sveinn Andri Pálsson, f. 28. apríl 1998.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.
- Morgunblaðið. Minning Birgis Kristinssonar.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.