Marteinn Árnason (Vesturhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Marteinn Árnason bóndi á Vesturhúsum og tómthúsmaður í Ömpuhjalli fæddist 1764 og lést í febrúar 1812.

Marteinn var bóndi á Vesturhúsum við giftingu 1793 og við fæðingu Magnúsar 1796, tómthúsmaður og sjómaður í Ömpuhjalli 1799 við fæðingu Ketils og 1801. Hann lést í Ömpuhjalli 1812 úr „svokölluðum ginklofa“, grafinn 23. febrúar.

Kona hans, (9. maí 1793), var Oddný Magnúsdóttir húsfreyja, f. 1761, á lífi 1801.
Börn þeirra hér:
1. Magnús Marteinsson, f. 4. desember 1796, d. 25. desember 1796 úr ginklofa.
2. Ketill Marteinsson, f. 31. janúar 1799 í Ömpuhjalli, d. 14. september 1837 úr „ofdrykkju og ...“ (ólesanlegt).


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.