Kristjana Óladóttir (Hoffelli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Kristjana Óladóttir, húsfreyja, leikskólakennari fæddist 25. apríl 1958 í Eyjum.
Foreldrar hennar Óli Sigurður Þórarinsson, frá Hoffelli, verkamaður, starfsmaður Flugfélags Íslands, f. 31. maí 1931, d. 19. júní 1989, og kona hans Gyða Steingrímsdóttir, frá Hólakoti á Skagaströnd, húsfreyja, verkakona, starfsmaður leikskóla, verslunarmaður, f. 6. júní 1935, d. 4. janúar 2011.

Börn Gyðu og Óla:
1. Kristjana Óladóttir, f. 25. apríl 1958. Maður hennar Þráinn G. Þorbjörnsson.
2. Albert Ólason, f. 12. mars 1960. Barnsmóðir hans Sólrún U. Harðardóttir.
3. Þórarinn Ólason, f. 21, febrúar 1963. Barnsmóðir hans Elsa Busk. Fyrrum kona hans Lára Skæringsdóttir. Fyrrum Sambúðarkona hans Eydís Unnur Tórshamar.

Þau Þráinn giftu sig, eignuðust fjögur börn. Þau búa við Dalhús í Rvk.

I. Maður Kristjönu er Þráinn Garðar Þorbjörnsson, frá Akurgerði í A.-Húnavatnssýslu, húsasmiður, f. 15. september 1955. Foreldrar hans Þorbjörn Jónsson, f. 26. júlí 1922, d. 2. september 1986, og Aðalbjörg Sigurðardóttir, f. 3. júní 1930 að Fiskanesi í Steingrímsfirði, d. 10. desember 2015.
Börn þeirra:
1. Þórey Gyða Þráinsdóttir, f. 11. júní 1982.
2. Sonný Lára Þráinsdóttir, f. 9. desember 1986.
3. Kristjana Ýr Þráinsdóttir, f. 29. maí 1992.
4. Albert Garðar Þráinsson, f. 9. nóvember 1996.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.