1.401
breyting
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 1: | Lína 1: | ||
Húsið '''Þorlaugargerði eystra''' | Húsið '''Þorlaugargerði eystra''' stendur utan byggðar, fyrir ofan hraun. Þorlaugargerðisjarðirnar eru tvær, og aðgreindar sem ''eystra'' og ''vestra.'' | ||
Þorlaugargerði eystra var talin ein af betri bújörðunum á vestmanneyskan mælikvarða, með 3-4 kúgildi og um 50 ær. Getið er um búsetu þar langt aftur í aldir og hafa þar margir búið í tímans rás. | |||
Árið 1905 fengu jörðina til ábúðar [[Jón Pétursson í Þorlaugargerði|Jón Pétursson]] bátasmiður og formaður og kona hans, [[Rósa Eyjólfsdóttir]]. Byggðu þau húsið upp og bjuggu þar rausnarbúi. Uppeldissonur þeirra [[Jón Guðjónsson (1903)|Jón Guðjónsson]] frá [[Oddsstaðir|Oddsstöðum]], tók við búi eftir þau og bjó á jörðinni ásamt konu sinni [[Guðrún Jónsdóttir (1909)|Guðrúnu Jónsdóttur]] frá [[Suðurgarður|Suðurgarði]] fram yfir miðja síðustu öld. | |||
Dóttir þeirra, [[Ingibjörg Jónsdóttir (1934)|Ingibjörg Jónsdóttir]], hefur búið þar frá 1957 ásamt manni sínum, [[Garðar Arason|Garðari Arasyni]]. Búskapur hefur ekki verið stundaður í Þorlaugargerði eystra síðan 1966, nema frístundabúskapur en túnin sem fylgja jörðinni hafa verið nytjuð af frístundabændum í Eyjum. | |||
Margir telja að Þorlaugargerði eystra standi á fallegasta bæjarstæði á [[Heimaey]], þar sem bæði er fjölbreytt og fagurt landslag kringum húsið sem og ægifagurt útsýni yfir suðurhluta Heimaeyjar og suðureyjarnar. | |||
[[Flokkur:Hús]] | [[Flokkur:Hús]] |
breyting