1.824
breytingar
Ekkert breytingarágrip |
(Gísli Lárusson) |
||
Lína 15: | Lína 15: | ||
:Hábrandinn ei hræðist ég, | :Hábrandinn ei hræðist ég, | ||
:en Hellisey er ógurleg. | :en Hellisey er ógurleg. | ||
==Úr örnefnaskrá [[Gísli Lárusson|Gísla Lárussonar]]== | |||
IV. '''Hellirsey''' liggur suður af Suðurey ca ½ mílu. Er hún einkennileg í lögun, myndar hálfhring. Svo að austan megin við hana myndast stór hvilft, '''Pollur''' . Sunnan við miðju er hún nefnd '''Lágey''' , er hún þar mjög lág, svo að sjór gengur þar yfir í miklu brimi. Er syðst á eynni nefndur '''Höfði''' , grasivaxin hæð að ofan og þar á mikil fýlatekja. Er í Höfðanum að vestanverðu uppganga í bergið af sjó nefnd '''Göngur''' . Hér upp af og norður af er töluverð súlnatekja. Þar fyrir norðan við brún uppi er fýlabekkur, '''Vesturflaktir''' , en þar niður af litlu sunnar er annar súlnabekkur, '''Langibekkur'''. | |||
Þar norður af í miðju bergi er hellir stór, '''Sóttarhellir''' . Þegar kemur austur fyrir Vesturflaktir er eyjan grasivaxin, dálítið sléttlendi, nefnd '''Flöt''' . En upp af henni er eyjan hæst og er þar nefnt '''Hánef''' . Fyrir neðan það og norður úr eynni er allhár hryggur, '''[[Sámur]]''' , og fremsta nefið á hrygg þessum '''Sámsnef''' ; er þar allmikil fuglatekja, svartfugl, súla og fýll. En upp af Sám, en niður af Hánefi er allstórt súlnabæli , '''Sámsbæli''' og má komast upp í Sám og upp úr honum í bæli þetta frá sjó, bandlaus; liggur þó bælið ca 50-60 faðma uppi. | |||
Hér fyrir sunnan eru hinir nafnkunnu '''Stórhellrar''' , erfiðustu bjargsig í Vestmannaeyjum, og er í þeim eingöngu súlnatekja. Er Hellirsey enn í dag skipt að súlnatekju, eins og áður var; á vestursókn (Ofanleitissókn) eyjuna að vestan, en austursókn (Kirkjubæjarsókn) að austan Stórhellra. Fyrir sunnan Stórhellra eru '''Austurflaktir'''. | |||
[[Flokkur:Örnefni]] | |||
{{Heimildir| | {{Heimildir| | ||
* Aðalskipulag Vestmannaeyja 2002-2014. | * Aðalskipulag Vestmannaeyja 2002-2014. | ||
}} | * [[Gísli Lárusson]]. Óútgefið '''Örnefni á Vestmannaeyjum'''. [http://www.ornefni.is | ||
Örnefnastofnun Íslands]}} |