„Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 2003/ Heimaklettur“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip

Lína 2: Lína 2:

'''Heimaklettur'''

'''Heimaklettur'''

[[Mynd:Friðbjörn Valtýsson.png|250px|center|thumb|Friðbjörn Valtýsson]]
Það fyrsta, sem mér dettur í hug þegar ég rifja upp í huganum myndir af [[Heimaklettur|Heimakletti]] æskunnar, er vertíðarfólk um páska í fjallgöngu. Gjarnan voru þetta karlmenn léttklæddir í hvítum skyrtum.

Heimaklettur blasir við úr gluggunum í [[Hergilsey]], æskuheimili mínu við Kirkjuveginn. Þar lá maður gjarnan og fylgdist með þessum hetjum sem gengu sporléttir á [[Háukollar|Háukolla]].

[[Ágúst Matthíasson|Gústi Matt]. var einn eigenda [[Fiskiðjan|Fiskiðjunnar]] á sínum tíma. Gústi var fljóthuga og skemmtilegur karl. Hann hafði það fyrir sið að ganga á Heimaklett með starfsfólki sínu á páskadag.

Eitt sinn var nokkuð hált á Klettinum, Gústa skrikaði fótur og byrjaði að renna niður. Hann kallaðí til starfsfólksins: „Ég skal borga ykkur laun alla páskana ef ég kemst lífs af.“ Gústi stöðvaðist fljótlega og bætti þá við að bragði: „Það má nú grínast.“

[[Mynd:Innsigling með heimakletti er ægifögur.png|250px|thumb|Innsiglingin með Heimakletti er ægifögur. Ljósm.: Addi í London]]
Á þessum árum vorum við peyjarnir ekki nógu djarfir til að leggja á [[Heimaklettur|Klettinn]], í mesta lagi á [[Neðri-Kleifar]]. Ég var orðinn um tvítugt þegar ég lagði í fyrsta skipti í ferð á toppinn.

Við peyjarnir gengum mikið undir [[Langa|Löngu]] sem er sandfjaran milli [[Kleifnaberg|Kleifnabergs]] og Hörgaeyrargarðs. Sæta þurfti sjávarföllum til að komast nokkurn veginn þurrum fótum fyrir [[Langanef|Löngunef]].

Lína 13: Lína 13:
Bóndi hennar, sem ekki verður nafngreindur hér, sá atvikið og fylgdist með þegar konan reyndi að krafla sig á land. Það eina, sem hann lét út úr sér, var: „Hvað ætli hafi orðið um matinn minn?“

Heimildir herma að Hjalti Skeggjason og Gissur hvíti, sendimenn Noregskonungs, hafi tekið land á [[Hörgaeyri]] og reist þar kirkju. Væntanlega hefur landslag verið með öðrum hætti þar um slóðir árið 1000. Jafnvel er talið að fjaran hafi legið frá Hörgaeyri til suðurs og jafnvel hafi verið lón þar fyrir innan. Síðar hafi lónið opnast til austurs. Hvort sem það er rétt eður ei, verður að telja kirkjustað ólíklegan undir Löngu, hafi staðhættir verið eins og í dag. Örnefnið Skrúðhellir eða Skrúðabyrgi undir klettinum styður hins vegar kenningu um kirkju þar.

Undir Löngu uppi við klettinn er [[Karató]], gamalt vatnsból. Þaðan lá vatnsleiðsla út á litlu steinbryggjuna. Í vatnsból þetta sóttu sjómenn vatn á báta sína á fyrstu áratugum aldarinnar. Það kom fyrir þegar miklir þurrkar voru hér í Eyjum á þessum tíma að vatnsskortur herjaði á heimilin. Trausti tengdafaðir minn hefir sagt mér frá því að amma hans, Ingibjörg í [[Höfðahús|Höfðahúsi]], hafi stundum farið með þvottinn sinn til skolunar í vatni úr Karató. Jóhann eiginmaður hennar átti þá vélbátinn Hugin. Nokkrar húsmæður við [[Lautin|Lautina]] söfnuðu saman þvottinum sínum og síðan var siglt að vatnsbryggjunni, þvotturinn skolaður og að verki loknu snúið heim á leið og hengt til þerris.

[[Mynd:Lundabyggðin í heimakletti er löngu orðin græ á sjómannadag.png|500px|center|thumb|Lundabyggðin í Heimakletti er löngu orðin grœn á sjómannadag. Ljósm.: Addi i Lomlon]]
Eins og flestir eflaust vita hefst uppganga á Heimaklett við gamla björgunarbátaskýlið sem reist var 1930.

Staðsetning björgunarbáts á þessum stað hefur trúlega verið vegna alvarlegs sjóslyss sem varð inn af Eiðinu 16. desember 1924 er 8 menn fórust á leið í Gullfoss sem þar lá. Björgunarbátur þessi er nú geymdur utandyra við Safnahúsið. Skýlið brotnaði illa í jarðskjálftunum árið 2000. Ísleifur Vignisson lundaveiðimaður sagði mér frá því að bjargið, sem grandaði skýlinu, hefði komið úr Hettu. Hann þekkti steininn, sagðist oft hafa tyllt sér á þennan stein sem skagaði fram við veiðistað þar uppi. Auðvelt er að sannreyna þessa kenningu Ísleifs þar sem glöggt má sjá hvaðan steinninn kom.

Lína 19: Lína 19:
Við stigann neðan við fjárréttina eru stórmerkar minjar. Hér er auðvitað átt við „papakrossinn“. Inni undir stiganum, ofarlega, er þessi kross sem talið er að sé frá veru papa í Eyjum fyrir landnám. Þess má geta að eftirmynd af krossinum prýðir kirkju hvítasunnumanna í miðbænum. Einnig er sams konar mynd á einu hurðaspjaldi Landakirkju.

Hamrabeltið, sem rís upp frá Efrikleifum, nefnist Hetta. Þar var byrjað að sprengja grjót í Hörgaeyrargarðinn. Reistir voru stillansar utan í bergið, handborað fyrir hvellhettum, stillansarnir rifnir frá og síðan sprengt. Verkinu stjórnaði Guðmundur, faðir Ingólfs úrara. Hann hlaut viðurnefnið „Gvendur Hettusprengir“ og var aldrei kallaður annað í Eyjum. Einnig hef ég heimildir fyrir því að Friðrik í [[Batavía|Batavíu]] hafi unnið við þetta verk ásamt Gvendi.

Gerðar voru kröfur um að einungis væri notað blágrýti við framkvæmdirnar. Það var erfiðleikum háð og eini möguleikinn var að sækja grjótið í Hettu. Horfið var frá sprengingum í Hettu vegna óheyrilegs kostnaðar og fyrirhafnar. Loks fékkst leyfi til að nota móberg við hafnargerðina, enginn hörgull var á því undir Löngu. Til gamans má geta þess að Monberg, danski verktakinn, sem stjórnaði hafnargerðinni, varð síðar ráðherra í dönsku ríkisstjórninni.

[[Mynd:Heimakl. séður úr vestri.png|500px|center|thumb|Eyjastelpan Lilly Jóhannesdóttir, sem er búsett í Ástralíu sagði í blaðaviðtali: „Ef það er eitthvað sem ég hefði viljað taka með mér að heiman, þá er það Heimaklettur“. Ljósm.: Addi í London]]
Í ævisögu Einars Benedikssonar stórskálds kemur fram að Einar hafði mikinn áhuga fyrir hafnargerð í Eyjum. Árið 1925 skrifar hann grein sem hann nefnir „Sælueyjar“ í Tímann, þar sem hann lýsir hugmyndum sínum um hafnargerð í Eyjum: „flaug mér í hug að hlaða mætti hafgarð úr Heimakletti í mynni Eyjavíkurinnar“ og byggja heimshöfn fyrir fengsælustu fiskistöð jarðarinnar.“ Einar telur sig hafa ýmsar heimildir fyrir landnámi Grikkja og Rómverja í Eyjum í fornöld. Hann klykkir síðan út með því að þeir hafi nefnt Eyjarnar „Sælueyjar.“

Þann 10. janúar 1961 strandaði belgíski togarinn Marie Jose Rosette á Hörgaeyrargarðinum í slæmu veðri á leið út úr höfninni. Skipstjórnarmenn misstu stjórn á skipinu vegna bilunar í stýri að því talið er. Togarinn brotnaði í spón á garðinum og stórskemmdi hann. Vestmannaeyjahöfn höfðaði mál á hendur útgerðinni til greiðslu skaðabóta vegna stórviðgerðar á hafnargarðinum. Höfnin tapaði málinu bæði í héraðsdómi og hæstarétti. Rétturinn taldi ábyrgð eigenda takmarkast við verðmæti skipsins. Þar sem litlu var hægt að bjarga úr togaranum, var skaði hafnarinnar nær algjör. Athyglisverð niðurstaða í ljósi alls kyns mengunarslysa sem nú eru í deiglu um allan heim.

Efst í berginu austan til upp af Löngu í svokölluðu Þuríðarnefi, er ílangur hellir eða tó. Bragi Steingrímsson hefur sagt mér að þar hafi verið mikið af dúfu hér áður fyrr. Hann nefnir þennan stað Dúfuhelli. Eldri menn nefndu þessar ílöngu hvelfingar Blöðkutær. Þar óx mikið af melgresi. Bragi segist oft hafa farið þangað í leit að dúfuungum til ræktunar í dúfubúrið sitt sem var frægt á sínum tíma fyrir fjölbreytileika og góða umhirðu. Talsvert var um dúfnarækt hér þegar ég var peyi. Dúfurnar voru til vandræða vegna þess að þær sátu gjarnan í þakrennum húsanna og hirtu ekki um að þrífa eftir sig skituna. Hún barst síðan í vatnsbrunna sem þá voru við hvert hús. Lögreglumenn voru því fengnir til að eyða öllum dúfum bæjarins. Þeir gengu hreint til verks og eyddu stofninum á nokkrum dögum dúfnaeigendum til mikillar skapraunar.

Landakirkja er, eins og mörgum mun kunnugt, byggð að mestu úr tilhöggnu móbergi úr Heimakletti. Bygging kirkjunnar hófst árið 1774 og stóð í fjögur ár. Kirkjan var formlega vígð árið 1780. Landakirkja er án efa eitt elsta steinhús landsins. Til gamans má geta þess að Landakirkja var teiknuð af Nikolai Eigtved, helsta húsameistara Dana, er frægur var um Norðurlönd. Hann teiknaði meðal annars höllu drottningar Amalienborg, Kristjánsborgarhöll og ýmsar frægar byggingar.

Ég hef heyrt þá sögu að húsið [[Dvergasteinn]], sem stóð við Heimagötu og fór undir hraun 1973, hafi verið byggt úr afgangsgrjóti frá kirkjubyggingunni. Húsið á sér merka sögu. Það var upphaflega byggt sem fyrsti barnaskóli Eyjanna.
Ég hef heyrt þá sögu að húsið [[Dvergasteinn]], sem stóð við Heimagötu og fór undir hraun 1973, hafi verið byggt úr afgangsgrjóti frá kirkjubyggingunni. Húsið á sér merka sögu. Það var upphaflega byggt sem fyrsti barnaskóli Eyjanna.[[Mynd:Nú er heimaklettur lýstur upp.png|500px|center|thumb|Nú er Heimaklettur lýstur upp frá Löngunni upp í Hettu og Þuríðarnef. Ljósm.: Jóhann Jónsson listo]]
Í bókinni Saga Vestmannaeyja, skráð af [[Sigfús M. Johnsen|Sigfúsi M. Johnsen]], segir hann hins vegar Dvergastein byggðan árið 1880. Grjótið, sem notað var, hafði verið til í einhvern tíma, segir Sigfús.

Sama ár var Austurbúðin byggð, verslunarhús J.P.T.Bryde. Húsið var stundum nefnt Fram eftir samnefndu kaupfélagi sem þar var eitt sinn til húsa.
Byggingarefnið var einnig tilhöggið móberg úr Heimakletti. Í Austurbúðinni var síðast netaverkstæði Hraðfrystistöðvarinnar. Húsið fór undir hraun í gosinu 1973.

Lína 65: Lína 65:
Þess má geta í framhjáhlaupi að sömu heimildir herma að Þórður í [[Hagi|Haga]] hafi stundað heyskap í Ystakletti síðast árið 1947 og á Klifinu allt til 1954.

Herjólfur Bárðarson heitir góður og gegn Eyjamaður þó ekki landnámsmaðurinn heldur einn hinna íslensku víkinga, sem gerðu hið fræga strandhögg í Nýja-heiminum árið 2000. Hann var einn skipverja á víkingaskipinu Íslendingi. Þegar Herjólfur var um fermingu fór hann, eitt sinn sem oftar, í leiðangur í Dönskutó trúlega í leit að eggjum. Ekki tókst betur til en svo að drengurinn varð innlyksa þar niðri einn síns liðs. Tókst honum ekki að ná taki á bandinu sem nota þarf til uppgöngu. Bandið var nylon-kaðall og hált vegna rigningar.

Herjólfur dó ekki ráðalaus. Hann kom auga á föður sinn og vinnufélaga hans úr Skipaviðgerðum sem voru að vinna í báti á Nausthamrinum. Stráksi, sem er raddsterkur mjög, hrópaði á föður sinn til hjálpar. Bárður fór við annan mann og sótti pilt sem ekki varð meint af.

[[Mynd:Þegar skoski togarinn Donwood lenti á Hörgaeyri, utan í Heimakletti.png|500px|center|thumb|Á 7. áratugnum lenti skoski togarinn Donwood á Hörgaeyri, utan í Heimakletti]]
Talsverð lundaveiði hefir ávallt verið í Heimakletti. Áðurnefndar jarðir áttu tilkall til veiðinnar áður fyrr. Þeir, sem harðastir eru í veiðinni síðari árin eru Georg Arnarson ættaður frá [[Skjaldbreið]], Árni „Nínon“ Hilmarsson og Ísleifur „Addi“ Vignisson frá [[London]]. Veiðistaðir eru valdir eftir vindátt og veðurfari.

Einn þekktastí veiðistaðurinn er kallaður „Kristjánssæti“, nefndur eftir [[Kristján Ingimundarson|Kristjáni Ingimundarsyni]] frá [[Klöpp]], sem sat þar gjarnan við veiðar. Þarna er aðallega veitt í suðaustan og austanátt. Kristján mun hafa veitt þar langt fram á níræðisaldur. Kristjánssæti er á Efrikleifum upp af Löngu. „Við steininn“ er veiðistaður vestur undan Hettu.

Lína 89: Lína 89:
''Heimildir: Ísleifur Vignisson, Helgi Bragason, Einar Benediktsson, Jóhann Gunnar Ólafsson, Trausti Jakobsson, Jessý Friðriksdóttir, Bragi Steingrímsson, Kristján Björnsson, Erna Þórarinsdóttir, Ólöf Þórarinsdóttir, Stefán Jónasson, Andrés Sigmundsson, Hilmir Högnason, Alda Björnsdóttir, Arnar Sigurmundsson, Jón Þórðarson, Jens Kristinsson, Högni Sigurðsson, Magnús Grímsson, Örn Hilmisson, Jón Gunnlautgsson, Elías Gunnlaugsson, Guðmundur Kjartansson jarðfr., Eiríkur H. Sigurgeirsson, Guðni Grímsson, Magnús Bjarnason, Jóhann Jónsson, Örn Einarsson, Ágúst Halldórsson, Anna Þorsteinsdóttir. Sigfús M. Johnsen, Sigurgeir Jónsson, Ásmundur Friðriksson, Haraldur Guðnason, Þorsteinn Jónsson, Friðrik Ásmundsson, Eyjólfur Martinsson, Ólafur Nielsen fuglafr.''

[[Mynd:Sigurður Jónsson og Magnús Ingibergsson.png|500px|center|thumb|Sigurður Jónsson, Diddi Jóns og Matthías Ingibergsson, Matti á Sandfelli]]

{{Sjómannadagsblað Vestmannaeyja}}
{{Sjómannadagsblað Vestmannaeyja}}

Leiðsagnarval