494
breytingar
(→Blómaskeið 2003-11: Heimsókn BÞ 2008) |
|||
Lína 240: | Lína 240: | ||
* 2008 Íslandsmót unglingasveita, 22. nóvember, 3 sæti, Sveit Taflfélags Vestmannaeyja: [[Nökkvi Sverrisson|Nökkvi]], [[Daði Steinn Jónsson|Daði Steinn]], [[Bjartur Týr Ólafsson|Bjartur Týr]] og [[Ólafur Freyr Ólafsson|Ólafur Freyr]]. | * 2008 Íslandsmót unglingasveita, 22. nóvember, 3 sæti, Sveit Taflfélags Vestmannaeyja: [[Nökkvi Sverrisson|Nökkvi]], [[Daði Steinn Jónsson|Daði Steinn]], [[Bjartur Týr Ólafsson|Bjartur Týr]] og [[Ólafur Freyr Ólafsson|Ólafur Freyr]]. | ||
* 2008 Íslandsmet í þátttöku á stúlknamóti, Vestmannaeyjum 2. desember, 65 stúlkur og konur tóku þátt í móti í Vestmannaeyjum (eldra met 49), Sigurvegari var [[Thelma Lind Halldórsdóttir|Thelma Halldórsdóttir]]. | * 2008 Íslandsmet í þátttöku á stúlknamóti, Vestmannaeyjum 2. desember, 65 stúlkur og konur tóku þátt í móti í Vestmannaeyjum (eldra met 49), Sigurvegari var [[Thelma Lind Halldórsdóttir|Thelma Halldórsdóttir]]. | ||
* 2008 '''Heimsókn forseta Skaáksambandsins til Eyja''', 11-12. desember kom Björn Þorfinnsson forseti SÍ ásamt Davíð Kjartanssyni skákkennara til Eyja til kennslu og skoðunar. Hér er grein sem Björn skrifaði af því tilefni. | |||
„Næst verðum við lengur“ voru orð Davíðs Kjartanssonar, kennara við Skákskóla Íslands þegar við stigum upp í flugvélina á leiðinni heim eftir velheppnaða tveggja daga heimsókn til Vestmannaeyja. Heimamenn tala um Skákeyjuna og hafa fulla ástæðu til enda er skákstarfið þar í miklum blóma og umgjörðin sem að tekist hefur að skapa er til stakrar fyrirmyndar. | |||
Taflfélag Vestmannaeyja heldur uppi afar öflugu starfi með æfingum fyrir alla aldurshópa og fjölbreyttum mótum. Starf sem einkennist af hugsjón og ástríðu og hefur skilað af sér tveimur Íslandsmeisturum í barnaflokki og tveimur Íslandsmeistaratitlum í sveitakeppni barnaskóla síðustu ár. Ég hef dáðst að þessum árangri í fjarlægð en loksins núna skil ég að hann er enginn tilviljun. | |||
Á þessari önn hefur Grunnskóli Vestmannaeyja boðið upp á skákkennslu fyrir krakka á barnaskólaaldri og hefur Björn Ívar Karlsson sinnt kennslunni. Öflugri maður í það verk er vandfundinn. Framtak skólans er aðdáunarvert og það var hreint út sagt mögnuð upplifun þegar við Davíð tefldum fjöltefli við ríflega 150 börn á föstudagsmorgni. Allir þátttakendur með undirstöðuatriði skáklistarinnar á hreinu, jafnvel þótt að rétt svo sæist í ennið á börnunum yfir borðbrúnina . Það er ljóst að Eyjamönnum mun ekki skorta efnivið í framtíðinni. Áhugi skólastjórnenda á öflugu skákstarfi virðist vera mikill og þegar það helst í hendur við öflug starf skákfélags í bæjarfélaginu þá eru menn á réttri leið. Í gegnum tíðina þá hefur skákhreyfingin staðið sig illa í því að sinna félagslega þættinum í barna- og unglingastarfi. Það kemur alltaf að því hjá ungum skákmönnum að á einhverjum tímapunkti minnkar áhuginn á íþróttinni tímabundið, það þekki ég af eigin reynslu. Þá þarf maður einhvern annan hvata til að mæta á æfingar eða mót og þá er ekkert jafnsterkt og það að mæta til að hitta vini sína. Það er augljóst að það atriði er í góðu lagi hjá TV því krakkarnir virðast skemmta sér konunglega á æfingum. Einbeitingin og keppnisharkan skín úr hverju andliti en brosið er aldrei langt undan. | |||
En hvað getur farið úrskeiðis? Þessir ungu skákmenn þurfa tækifæri og áskorarnir. Þá þarf að hvetja krakkana til að viða sjálf að sér þekkingu í skákbókum og skáksíðum á netinu. Með því að fara yfir og fylgjast með skákum fremstu skákmeistara heims þá lærir maður alveg ótrúlega hratt. Þegar það helst í hendur við mætingu á æfingar og taflmennsku í skákmótum þá eru ungum skákmönnum allir vegir færir – jafnvel þótt að þeir þurfi að taka Herjólf. | |||
Ég vil þakka fyrir frábærar móttökur í þessari fyrstu „kennsluferð“ minni til Eyja. Fyrstu en ekki þeirri síðustu því það er afar mikilvægt að Skáksamband Íslands styðji við bakið á þessu frábæra starfi með ráðum og dáð. Næst verðum við lengur. | |||
* 2009 Netskákmót, 5. mars, Eyjar á móti völdu liði ofan af landi 7-5. | * 2009 Netskákmót, 5. mars, Eyjar á móti völdu liði ofan af landi 7-5. | ||
* 2009 Íslandsmót barnaskólasveita, Reykjavík 7. - 8. mars, 2 sæti, Barnaskóli Vestmannaeyja, [[Daði Steinn Jónsson|Daði Steinn]], [[Kristófer Gautason|Kristófer]], [[Ólafur Freyr Ólafsson|Ólafur Freyr]] og [[Valur Marvin Pálsson|Valur Marvin]], voru efstir í undankeppni allra liða í Rimaskóla með 24,5 vinninga af 28 mögulegum en Rimaskóli var með 21,5 vinn. Fjögur efstu liðin kepptu svo daginn eftir og fór þá svo að við lentum í 2 sæti á eftir Rimaskóla. Þessi tilhögun keppninar með tvo keppnisdaga, þar sem fyrri dagurinn gilti ekkert nema til að komast í úrslit var nýlunda og var sett okkur til höfuðs, eftir gott gengi okkar árin á undan. Á mótinu kepptu 40 sveitir, þar af 5 úr Eyjum en alls 10 utan af landi. | * 2009 Íslandsmót barnaskólasveita, Reykjavík 7. - 8. mars, 2 sæti, Barnaskóli Vestmannaeyja, [[Daði Steinn Jónsson|Daði Steinn]], [[Kristófer Gautason|Kristófer]], [[Ólafur Freyr Ólafsson|Ólafur Freyr]] og [[Valur Marvin Pálsson|Valur Marvin]], voru efstir í undankeppni allra liða í Rimaskóla með 24,5 vinninga af 28 mögulegum en Rimaskóli var með 21,5 vinn. Fjögur efstu liðin kepptu svo daginn eftir og fór þá svo að við lentum í 2 sæti á eftir Rimaskóla. Þessi tilhögun keppninar með tvo keppnisdaga, þar sem fyrri dagurinn gilti ekkert nema til að komast í úrslit var nýlunda og var sett okkur til höfuðs, eftir gott gengi okkar árin á undan. Á mótinu kepptu 40 sveitir, þar af 5 úr Eyjum en alls 10 utan af landi. |
breytingar