Jóna Kristjánsdóttir (Fjólugötu)
Jóna Kristjánsdóttir, húsfreyja, skrifstofumaður fæddist 18. maí 1971.
Foreldrar hennar Kristján Jóhannesson, kennari, vélfæðingur, vélvirkjameistari, f. 21. febrúar 1945, og kona hans Vigdís Hallfríður Guðjónsdóttir, húsfreyja, kennari, f. 27. október 1946.
Börn þeirra:
1. Guðjón Jóhannes Kristjánsson sjómaður, f. 9. júlí 1968, ókv.
2. Jóna Kristjánsdóttir skrifstofumaður, f. 18. maí 1971. Fyrrum maður hennar Hlynur Guðmundsson. Maður hennar Gísli Matthías Gíslason.
3. Ingibjörg Kristjánsdóttir skrifstofustjóri í eigin fyrirtæki, f. 3. júlí 1977. Maður hennar Björn Steinar Unnarsson.
Þau Hlynur giftu sig, eignuðust tvö börn saman. Þau skildu.
Þau Gísli Matthías giftu sig, eignuðust ekki börn saman. Þau búa í Rvk.
I. Fyrrum maður Jónu var Hlynur Guðmundsson, f. 27. júlí 1972.
Börn þeirra:
1. Jóhann Ingi Hlynsson, f. 28. september 1995.
2. Kristján Elí Hlynsson, f. 17. október 1999.
II. Maður Jónu er Gísli Matthías Gíslason, sjómaður, þyrluflugmaður, f. 15. maí 1973.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Ingibjörg.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.