Jón Ólafur Jóhannesson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jón Ólafur Jóhannesson netagerðarmeisari, býr í Kanada, fæddist 29. október 1949 á Reynivöllum.
Foreldrar hans Jóhannes Guðbjartsson sjómaður, f. 15. október 1916, d. 3. nóvember 1988, og sambúðarkona hans Fríða Jóhanna Jónsdóttir húsfreyja, f. 3. júní 1914, d. 26. maí 1995.

Barn Fríðu og Jacobs:
1. Ebba Unnur Jakobsdóttir, húsfreyja, f. 23. febrúar 1945. Maður hennar Jónas Helgi Guðjónsson, húsasmíðameistari.
Börn Fríðu og Jóhannesar:
2. Guðrún Halldóra Jóhannesdóttir, f. 5. júní 1948 á Vegbergi við Skólaveg 32. Maður hennar Guðmundur Einarsson.
2. Jón Ólafur Jóhannesson, f. 29. október 1949 á Reynivöllum. Fyrrum kona hans Ingibjörg Bergrós Jóhannesdóttir. Kona hans Ólöf Andrésdóttir.

Þau Ingibjörg Bergrós giftu sig, eignuðust eitt barn. Þau bjuggu við Heiðarveg 5. Þau skildu.
Þau Ólöf giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau búa í Kanada.

I. Fyrrum kona Jóns Ólafs er Ingibjörg Bergrós Jóhannesdóttir húsfreyja, vinnur við umönnun, f. 6 desember 1953. Foreldrar hennar Jóhannes Pétur Sigmarsson, f. 9. september 1929, d. 18. desember 2008, og Jóhanna Þorsteinsdóttir, f. 25. mars 1930, d. 21. nóvember 2000.
Barn þeirra:
1. Jóhannes Jónsson, f. 28. ágúst 1970.

II. Kona Jóns Ólafs er Ólöf Sigríður Andrésdóttir úr V.-Skaft., húsfreyja, f. 14. desember 1953. Foreldrar hennar Andrés Sigurður Einarsson, f. 29. desember 1929, d. 5. maí 2015, og Svava Ólafsdóttir, f. 10. febrúar 1932, d. 2. september 2007.
Börn þeirra:
2. Auður Jónsdóttir, f. 15. ágúst 1976.
3. Andrea Svava Jónsdóttir, f. 22. október 1985.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.