Jón Stefánsson (Mörk)
Jón Stefánsson frá Mörk, sjómaður, málari í Neskaupstað fæddist 11. maí 1953.
Foreldrar hans voru Stefán Kristvin Pálsson frá Siglufirði, sjómaður, trillukarl, f. 26. september 1921, drukknaði 5. janúar 1965, og kona hans Ása Guðrún Jónsdóttir frá Mörk, húsfreyja, f. 25. september 1922, d. 17. janúar 2010.
Barn Ásu Guðrúnar og Wilhelm Guren frá Noregi:
1. Margrét Steinunn Jónsdóttir húsfreyja, f. 31. október 1943 í Mörk. Maður hennar Arnar Valur Ingólfsson.
Börn Ásu Guðrúnar og Stefáns Kristvins Pálssonar:
2. Tómas Stefánsson húsasmiður í Kópavogi, f. 28. október 1947 í Mörk. Kona hans Steinunn Kristensen.
3. Gyða Stefánsdóttir skrifstofumaður í Reykjavík, f. 6. nóvember 1950 í Mörk. Hún er ógift.
4. Halldór Páll Stefánsson sjómaður, f. 11. nóvember 1948 á Fögruvöllum, drukknaði 1. apríl 1995. Hann var ókvæntur og barnlaus.
5. Halldóra Stefánsdóttir húsfreyja, skólaliði í Hafnarfirði, f. 18. nóvember 1951 í Mörk. Maður hennar Haukur Gunnarsson.
6. Jón Stefánsson sjómaður í Neskaupstað, f. 11. maí 1953 í Mörk. Fyrrum sambúðarkona hans Ásta Sigrún Gylfadóttir.
7. Bryndís Stefánsdóttir fiskverkakona, f. 9. maí 1955 í Mörk, d. 22. maí 1977. Barnsfaðir hennar Gísli Erlingsson.
8. Sveinn Stefánsson húsasmiður, síðast í Hafnarfirði, f. 19. júní 1956 í Hólmgarði, d. 17. ágúst 2020. Kona hans Hulda Kristinsdóttir.
Þau Sigríður hófu sambúð, eignuðust eitt barn. Þau bjuggu í Helgafelli. Þau skildu.
Þau Ásta Sigrún hófu sambúð, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu á Norðfirði. Þau skildu.
I. Fyrrum sambúðarkona Jóns er Sigríður Högnadóttir húsfreyja, verslunarmaður, f. 5. september 1956.
Barn þeirra:
1. Stefán Jónsson yfirlögregluþjónn , f. 15. september 1974 í Keflavík. Kona hans Þórunn Pálsdóttir ættuð frá Þingholti.
II. Fyrrum sambúðarkona Jóns er Ásta Sigrún Gylfadóttir frá Norðfirði, húsfreyja, f. 18. janúar 1962. Foreldrar hennar Elsa Sæný Gísladóttir, f. 1. febrúar 1942, d. 20. desember 1974, og Gylfi Gunnarsson, f. 27. júlí 1940, d. 12. júní 2015.
Börn þeirra:
1. Orri Þór Jónsson, f. 16. maí 1991.
2. Berglind Gígja Jónsdóttir, f. 8. nóvember 1995.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Ásta Sigrún.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.