Jón Einarsson (Heklu)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jón Einarsson, pípulagningamaður á Selfossi fæddist 19. júlí 1961.
Foreldrar hans Einar Indriðason, sjómaður, f. 17. nóvember 1933, d. 13. júní 1985, og kona hans Fjóla Guðmannsdóttir, húsfreyja, fiskverkakona, f. 24. september 1940, d. 8. maí 2018.

Börn Fjólu og Einars:
1. Stefán Einarsson f. 3. maí 1959. Kona hans Jóhanna Guðný Weihe.
2. Jón Einarsson, f. 19. júlí 1961. Fyrrum kona hans Þórlaug Steingrímsdóttir. Kona hans Ragna Sigurðardóttir.
3. Einar Fjölnir Einarsson, f. 2. apríl 1963, d. 11. október 2021.
4. Davíð Þór Einarsson, f. 17. apríl 1966. Fyrrum kona hans María Pétursdóttir. Sambúðarkona hans Sonata Grajanskalte.
5. Rósberg Ragnar Einarsson, f. 24. janúar 1974.
6. Indriði Helgi Einarsson, f. 21. maí 1968, d. 6. október 2023. Fyrrum sambúðarkona hans er Erla Sveinbjörg Sævarsdóttir.

Þau Þórlaug giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu við Búhamar 26. Þau skildu.
Þau Ragna giftu sig, hafa ekki eignast börn saman, en hún á fjögur börn.

I. Fyrrrum kona Jóns er Þórlaug Steingrímsdóttir, húsfreyja, f. 6. maí 1962. Foreldrar hennar Steingrímur Þórðarson, f. 10. maí 1912, d. 24. júlí 1984, og Arnheiður Inga Elíasdóttir, f. 28. júní 1924, d. 5. nóvember 1999.
Börn þeirra:
1. Rósa Jónsdóttir, f. 14. september 1983 í Eyjum.
2. Steingrímur Arnar Jónsson, f. 16. október 1987 í Eyjum.
3. Rakel Jónsdóttir, f. 11. desember 1997 í Rvk.

II. Kona Jóns er Ragna Sigurðardóttir úr Skagafirði, kennari, f. 14. nóvember 1960. Foreldrar hennar Sigurður Hólm Jóelsson, f. 21. maí 1923, d. 4. júní 2015, og Anna Jónsdóttir, f. 25. júní 1925, d. 1. mars 1999.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.