Jóhanna Laufey Eyjólfsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Jóhanna Laufey Eyjólfsdóttir.

Jóhanna Laufey Eyjólfsdóttir frá Laugardal, húsfreyja, saumakona fæddist 3. október 1915 í Bræðraborg og lést 9. desember 1984.
Foreldrar hennar voru Eyjólfur Sigurðsson frá Syðstu-Grund u. Eyjafjöllum, formaður, smiður, f. 25. febrúar 1885, drukknaði 31. desember 1957, og kona hans Nikólína Eyjólfsdóttir frá Mið-Grund þar, húsfreyja, f. 25. mars 1887, d. 29. júní 1973.

Börn Nikólínu og Eyjólfs voru:
1. Jóhanna Laufey Eyjólfsdóttir húsfreyja, saumakona, f. 3. október 1915 í Bræðraborg, d. 9. desember 1984.
2. Óskar Eyjólfsson skipstjóri, f. 10. janúar 1917 í Hraungerði, drukknaði 23. febrúar 1953.
3. Sigurbjörg Eyjólfsdóttir, f. 24. maí 1918 í Laugardal, d. 23. mars 1920.
4. Guðmunda Alda Eyjólfsdóttir, f. 18. nóvember 1919 í Laugardal, d. 23. mars 1920.
5. Guðmundur Sigurbjörn Eyjólfsson, f. 10. júní 1921, d. 9. september 1923.
6. Sigríður Eyjólfsdóttir húsfreyja, f. 16. desember 1922 í Laugardal, d. 25. október 1994.
7. Ágústa Eyjólfsdóttir, f. 27. ágúst 1924 í Laugardal, d. 20. október 1942.
8. Ragnar Eyjólfsson sjómaður, skipstjóri, f. 7. mars 1928 í Laugardal, d. 6. september 2015.
9. Sigríður Alda Eyjólfsdóttir húsfreyja, kaupmaður, f. 19. mars 1930 í Laugardal, d. 20. janúar 2010.
Fósturbarn hjónanna, dóttir Sigríðar dóttur þeirra og Péturs Þorbjörnssonar, er
10. Ágústa Pétursdóttir húsfreyja, f. 3. febrúar 1943.

Jóhanna var með foreldrum sínum í æsku.
Hún leitaði sér atvinnu á Ólafsfirði. Þar vann hún verkakvennastörf og síðar þjónustustörf hjá Ásgrími Hartmannssyni og Helgu konu hans.
Jóhanna leitaði til Reykjavíkur, vann um skeið í Listamannaskálanum og síðan á saumastofunni Spörtu. Löngu síðar vann hún á saumastofu Halldórs Guðjónssonar þar.
Þau Valdimar giftu sig 1946 og bjuggu að Bárugötu 16 í Reykjavík, eignuðust þrjú börn.
Jóhanna lést 1984 og Valdimar 1990.

I. Maður Jóhönnu, (19. ágúst 1946), var Guðmundur Valdimar Páll Guðmundsson skipstjóri, f. 18. nóvember 1913 á Þingeyri við Dýrafjörð, d. 20. maí 1990. Foreldrar hans voru Guðmundur Bjarni Jónsson frá Aðalbóli í Lokinhamradal í Arnarfirði, skipstjóri, f. 9. desember 1870, d. 18. ágúst 1954, og kona hans Helga Jóna Jónsdóttir frá Hrauni á Ingjaldssandi, húsfreyja, f. 5. nóvember 1882, d. 17. apríl 1966.
Börn þeirra:
1. Valdimar Valdimarsson, f. 10. janúar 1948, d. 27. mars 2001. Kona hans var Þorgerður Einarsdóttir.
2. Eyjólfur Nikulás Valdimarsson, verkfræðingur, f. 23. desember 1949. Kona hans er Hanna Unnsteinsdóttir.
3. Helga Valdimarsdóttir, f. 2. maí 1951. Maður hennar er Óskar Alfreðsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.