Helga Sigrún Þórsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Helga Sigrún Þórsdóttir, húsfreyja, sérkennari, deildarstjóri fræðslusviðs Vestmannaeyjabæjar, fæddist 15. nóvember 1978 í Eyjum.
Foreldrar hennar Þór Ísfeld Vilhjálmsson frá Burstafelli við Vestmannabraut 65a, vélstjóri, skipstjóri, starfsmannastjóri, leiðbeinandi á námskeiðum tengdum sjávarafla og mannauðsstjórnun, stjórnarmaður, stjórnarformaður Sparisjóðsins, f. 30. nóvember 1945, og kona hans Sólveig Adolfsdóttir, húsfreyja, verslunarmaður, skrifstofumaður, f. 1. október 1946.

Börn Sólveigar og Þórs:
1. Adolf Hafsteinn Þórsson bifvélavirki, f. 23. apríl 1966. Kona hans er María Sigurbjörg Sigurbjörnsdóttir.
2. María Þórsdóttir bókari, f. 6. janúar 1972. Fyrrum maður hennar Einar Guðnason.
3. Helga Sigrún Þórsdóttir sérkennari, dildarstjóri fræðslusviðs Vestmannaeyjabæjar, f. 15. nóvember 1978. Maður hennar Jónas Guðbjörn Jónsson.

Þau Jónas Guðbjörn giftu sig 2020, eignuðust tvö börn. Þau búa við Hólagötu 39.

I. Maður Helgu Sigrúnar, (1. ágúst 2020), er Jónas Guðbjörn Friðhólm Jónsson, f. 11. mars 1974. Foreldrar hans Jón Friðhólm Friðriksson, sjómaður, vélvirki, f. 10. nóvember 1954 í Kópavogi, d. 16. febrúar 2024, og Alma Jónsdóttir, húsfreyja, læknaritari, f. 17. apríl 1955, d. 5. október 2019.
Börn þeirra:
1. Jón Grétar Jónasson, f. 13. ágúst 2005 í Rvk.
2. María Sigrún Jónasdóttir, f. 21. maí 2012 í Rvk.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.