Hallgrímur Steinar Rögnvaldsson
Hallgrímur Steinar Rögnvaldsson vélstjóri, stálskipasmiður, veitingamaður á Sælandi og Canton í Eyjum, fæddist 23. ágúst 1959.
Foreldrar hans voru Rögnvaldur Þór Rögnvaldsson úr Reykjavík, bifreiðastjóri, fiskkaupmaður, verkamaður, f. 14. mars 1930, og kona hans Ásta Sigurbjörg Guðjónsdóttir húsfreyja, f. 1. ágúst 1929 í Hlíðardal.
Börn Ástu og Rögnvaldar:
1. Guðjón Ragnar Rögnvaldsson útgerðarmaður í Eyjum, f. 8. maí 1950 í Reykjavík. Kona hans Ragnheiður Einarsdóttir Hjartarsonar.
2. Bryndís Rögnvaldsdóttir húsfreyja, f. 28. september 1952 í Bergholti. Maður hennar Sigurbjörn Unnar Guðmundsson.
3. Hörður Þór Rögnvaldsson matsveinn, gistiheimilisrekandi á Akureyri, f. 7. apríl 1955 á Brimhólabraut 23. Kona hans Sigrún Gísladóttir.
4. Hallgrímur Steinar Rögnvaldsson vélstjóri, stálskipasmiður, veitingamaður, f. 13. ágúst 1959 á Sjh. Fyrrum kona hans Helga Sævarsdóttir. Kona hans Weni Seng.
5. Rannveig Rögnvaldsdóttir húsfreyja, skrifstofumaður, f. 24. júní 1964 á Brimhólabraut 23. Maður hennar Halldór Halldórsson.
Þau Helga giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau skildu.
Þau Weni giftu sig, eignuðust eitt barn og hún átti tvö börn áður. Þau búa við Vestmannabraut 65b.
I. Fyrrum kona Hallgríms Steinars er Helga Sævarsdóttir úr Garðabæ, húsfreyja, afgreiðslumaður í brauðbúð, f. 12. janúar 1959.
Börn þeirra:
1. Magnea Vattnes Hallgrímsdóttir, f. 12. júní 1979.
2. Sævar Þór Vattnes Hallgrímsson, f. 31. janúar 1980.
3. Sædís Bára Vattnes Hallgrímsdóttir, f. 21. apríl 1987.
II. Kona Hallgríms Steinars er Weni Seng.
Barn þeirra:
4. Hákon Örn Hallgrímsson, f. 14. febrúar 2008.
Börn Weni:
5. Mang Mang Huang, f. 18. apríl 1992.
6. Nann Nann Huang, f. 2. ágúst 1995.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Hallgrímur.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.