Hafdís Hannesdóttir (Bakkastíg)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Hafdís Hannesdóttir, húsfreyja, skrifstofumaður hjá Vinnslustöðinni fæddist 16. júlí 1966.
Foreldrar hennar Hannes Haraldsson frá Fagurlyst við Urðaveg 16, skipstjóri, f. 4. október 1938, og kona hans Magnea Guðrún Magnúsdóttir, frá Felli við Vestmannabraut 34, húsfreyja, f. 28. desember 1942, d. 29. janúar 2023.

Börn Magneu og Hannesar:
1. Hafdís Hannesdóttir húsfreyja, skrifstofumaður hjá Vinnslustöðinni, f. 16. júlí 1966. Maður hennar er Jóhann Þór Jóhannsson og Guðlaugar Pétursdóttur frá Kirkjubæ.
2. Haraldur Hannesson rafvirki, stýrimaður, útgerðarmaður, eigandi og rekur trilluna Víkurröst ásamt Hannesi föður sínum, f. 2. október 1968. Kona hans er Anna Ólafsdóttir.
3. Hafþór Hannesson sölustjóri hjá Pennanum í Reykjavík, f. 29. júní 1972. Kona hans er Þorbjörg Hanna Ögmundsdóttir.

Þau Jóhann Þór giftu sig 1993, eignuðust þrjú börn. Þau búa við Áshamar 63.

I. Maður Hafdísar, (22. apríl 1993), er Jóhann Þór Jóhannsson, sjómaður, f. 27. september 1961.
Börn þeirra:
1. Hannes Jóhannsson, f. 11. desember 1993.
2. Sindri Jóhannsson, f. 4. júní 1996.
3. Magnea Jóhannsdóttir, f. 25. nóvember 1997.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.