Gylfi Sigurðsson (húsasmíðameistari)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Gylfi Sigurðsson húsasmíðameistari í Eyjum og Garðabæ fæddist 26. janúar 1959 í Kópavogi.
Foreldrar hans voru Sigurður Sigurðsson frá Vatnsdal skipa- og húsasmíðameistari, f. þar 22. júlí 1928, d. 16. ágúst 2020, og kona hans Jóhanna Margrét Friðriksdóttir húsfreyja, verkakona, verkalýðsleiðtogi, f. 13. október 1930 í Reykjavík, d. 17. nóvember 2012.

Börn Jóhönnu og Sigurðar:
1. Atli Sigurðsson skipstjóri, f. 3. ágúst 1952 í Reykjavík. Kona hans er Harpa Njálsdóttir Andersen húsfreyja, f. 10. ágúst 1948.
2. Bjartey Sigurðardóttir talmeinafræðingur, f. 12. febrúar 1957 í Reykjavík. Maður hennar, (skildu), er Gunnar Þór Sigurðsson vélstjóri, rafvirkjameistari frá Svanhól, f. 7. júlí 1948.
3. Gylfi Sigurðsson húsasmíðameistari, f. 26. janúar 1959 í Kópavogi. Kona hans er Guðrún Erlingsdóttir húsfreyja, bæjarfulltrúi, fyrrv. varaþingmaður, ráðgjafi, blaðamaður.
4. Friðrik Arnar Sigurðsson vélfræðingur, f. 9. mars 1965 í Kópavogi. Fyrrum kona hans Anna Elísabet Sæmundsdóttir. Kona hans Margrét Ragnarsdóttir.

Gylfi var með foreldrum sínum, bjó hjá þeim við Fjólugötu 29 við Gosið 1973 .
Hann lærði húsasmíði, öðlaðist meistararéttindi og vann við iðn sína.
Þau Guðrún giftu sig, eignuðust tvö börn og eitt kjörbarn. Þau bjuggu við Áshamar 14, fluttu úr Eyjum 2012, búa við Brekkubyggð í Garðabæ.

I. Kona Gylfa, (28. júlí 1985), er Guðrún Erlingsdóttir húsfreyja, verslunarmaður, bæjarfulltrúi og forseti bæjarstjórnar í Eyjum, fyrrv. varaþingmaður, blaðamaður f. 18. október 1962 í Eyjum.

Börn þeirra:
1. Erling Þór Gylfason flugstjóri í Hafnarfirði, f. 28. júlí 1980 í Eyjum.
2. Bjartey Ósk Gylfadóttir, kjörbarn hjónanna, myndlistarkennari í Eyjum, f. 8. ágúst 1983. Maður hennar Sæþór Gunnarsson bílamálari.
3. Jóhanna Gylfadóttir sjúkraþjálfari í Kópavogi, f. 30. janúar 1990. Unnusti hennar Þórir Helgi Hallgrímsson grafískur miðlari.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Knudsensætt 1-2. Ritstjóri Þorsteinn Jónsson. Sögusteinn 1986.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.